Besta byrjun liðs frá upphafi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. nóvember 2015 07:41 Hinn magnaði Steph Curry. Vísir/Getty
NBA-meistararnir í Golden State Warriors virðast einfaldlega óstöðvandi. Í nótt vann liðið öruggan sigur á LA Lakers, 111-77, og hefur því unnið alla sextán leiki sína til þessa á tímabilinu. Ekkert lið hefur byrjað betur frá upphafi NBA-deildarinnar en gamla metið áttu Washington Capitols frá 1947 og Houston Rockets frá 1993. Hvorugt þessara liða var þó ríkjandi meistari, líkt og Warriors nú. Sigrinum var vel fagnað í leikslok en pappírsstrimlum rigndi yfir völlinn eftir að Golden State hafði tryggt sér sinn sess í sögubókunum. Lakers er nú með næstversta árangur allra liða í deildinni en liðið hefur unnið tvo leiki af fjórtán. Kobe Bryant jafnaði sína verstu skotnýtingu á ferlinum en hann skoraði fjögur stig og nýtti aðeins eitt skot af fjórtán. Indiana vann Washington, þar sem Paul George fór á kostum og skoraði 40 stig. Alls skoraði Indiana nítján þriggja stiga körfur í leiknum í aðeins 26 tilraunum. Chicago vann Portland, 93-88. Derrick Rose sneri til baka inn á völlinn eftir meiðsli og skoraði sautján stig. Hann hafði misst af tveimur leikjum vegna meiðsla í ökkla.Úrslit næturinnar: Washington - Indiana 106-123 Atlanta - Boston 121-97 Memphis - Dallas 110-96 Denver - LA Clippers 94-111 Portland - Chicago 88-93 Golden State - LA Lakers 111-77
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira