Enn einn sigur Golden State | Úrslitin í nótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. desember 2015 07:15 Ekkert getur stöðvað sigurgöngu Golden State. vísir/getty
Sigurganga Golden State Warriors í NBA-deildinni heldur áfram en í nótt bar liðið sigurorð af Brooklyn Nets á útivelli, 98-114. Golden State hefur þar með unnið alla 22 leiki sína í deildinni í vetur sem er met. Stephen Curry var stigahæstur í liði meistaranna með 28 stig en hann hitti úr fimm af níu þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Draymond Green kom næstur en hann daðraði við þrennuna með 22 stig, níu fráköst og sjö stoðsendingar. Thaddeus Young skoraði 25 stig og tók 14 fráköst fyrir Brooklyn sem hefur aðeins unnið fimm af fyrstu 20 leikjum sínum. Jeff Green tryggði Memphis Grizzlies sigur á Phoenix Suns, 95-93, með ótrúlegri flautukörfu sem má sjá hér að neðan. Þetta var níundi sigur Memphis í síðustu 12 leikjum en liðið er í 4. sæti Vesturdeildarinnar. Spænski miðherjinn Marc Gasol var stigahæstur í liði Memphis með 22 stig en hjá Phoenix bar mest á Eric Bledsoe sem gerði 23 stig, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar. Russell Westbrook var með þrennu (19 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar) þegar Oklahoma City Thunder vann þriggja stiga sigur, 98-95, á Sacramento Kings á heimavelli. Kevin Durant, sem tapaði alls 10 boltum í leiknum, var mikilvægur á lokakaflanum en hann skoraði sex af síðustu átta stigum OKC. Durant endaði með 20 stig og 10 fráköst. Rudy Gay skoraði 20 stig fyrir Sacramento sem er búið að tapa þremur leikjum í röð.Úrslitin í nótt: Brooklyn 98-114 Golden State Memphis 95-93 Phoenix Oklahoma 98-95 Sacramento Washington 104-116 Dallas Detroit 111-91 LA LakersCurry var öflugur í nótt Mögnuð sigurkarfa Green Wes Matthews setti niður 10 þrista
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira