Haukar unnu öruggan 39 stiga sigur í bikarnum | Njarðvík B sigraði í nágrannaslagnum 5. desember 2015 17:47 Haukur var með átta stig í leiknum í dag. Vísir/Vilhelm
Úrvalsdeildarlið Hauka vann sannfærandi 39 stiga sigur á Ármanni í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins í dag en Haukar náðu sautján stiga forskoti strax í fyrsta leikhluta. Haukar náðu þegar mest var 44 stiga forskoti í leiknum en Ívar Ásgrímsson, þjálfari liðsins, gat dreift álaginu vel og fengu allir leikmenn liðsins að spila einhverjar mínútur. Stephen Michael Madison var stigahæstur í leiknum með 16 stig en Emil Barja bætti við 13 stigum og tók 13 fráköst í liði Hauka. Í liði gestanna voru það þeir Dagur Hrafn Pálsson og Guðni Sumarliðason sem voru atkvæðamestir með 12 stig hvor en Dagur tók ásamt því 12 fráköst í leiknum. Þá vann Njarðvík B átta stiga á Reyni Sandgerði í Sandgerði í dag en Njarðvík B náði mest 15 stiga forskoti í leiknum. Styrmir Gauti Fjeldsted var atkvæðamestur í liði Njarðvíkur B með 16 stig en í liði heimamanna var Sævar Eyjólfsson stigahæstur með 16 stig. Leik Breiðabliks og Skallagríms var frestað en hann hefst klukkan 18.30.
Dominos-deild karla Mest lesið Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Fótbolti Segja hegðun Paragvæ til skammar Fótbolti Fleiri fréttir Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sjá meira