Gamli, góði Kobe snéri aftur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. desember 2015 07:21 Kobe var í banastuði í nótt. vísir/getty
Lakers vann loks leik með Kobe í fínu formi og Golden State vann sinn 20. leik í röð. Leikurinn gegn Washington í nótt var annar leikurinn á kveðjuferðalagi Kobe Bryant. Hann gat ekkert í fyrsta leiknum gegn Philadelphia en var frábær í leik tvö. Hann skoraði 31 stig í sigri sem er hans besta í vetur. Tólf stig komu í lokaleikhlutanum þegar allt var undir. Annað kvöldið í röð fékk hann ótrúlegar móttökur frá áhorfendum og hitti líka forsetann. „Ég hélt að allir hötuðu mig," sagði Kobe með bros á vör. „Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt." Áhorfendur fögnuðu meira að segja körfum frá Kobe og líka þegar hann svo gott sem tryggði Lakers sigurinn á útivelli. Afar sérstakt. Stephen Curry er ekkert að leika sér en hann skoraði 40 stig í nótt er Warriors vann sinn 20. leik í röð á tímabilinu. Að þessu sinni gegn Charlotte þar sem faðir Steph, Dell Curry, var að lýsa fyrir Hornets og bað son sin um að eyðileggja ekki kvöldið. Steph tók ekkert mark á föður sínum og gerði nákvæmlega það. Þessi 20-0 byrjun Golden State er að sjálfsögðu sú besta frá upphafi.Úrslit: Charlotte-Golden State 99-116 Washington-LA Lakers 104-108 Detroit-Phoenix 127-122 NY Knicks-Philadelphia 99-87 Atlanta-Toronto 86-99 Chicago-Denver 99-90 Houston-New Orleans 108-101 San Antonio-Milwaukee 95-70 LA Clippers-Indiana 91-103Staðan í NBA-deildinni.Móttökurnar sem Kobe fékk í nótt voru ótrúlegar.vísir/getty
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira