Sjaldséð þrenna frá Durant í sigri Oklahoma City | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. desember 2015 07:30 Kevin Durant sauð saman í þrennu í nótt. vísir/getty
Oklahoma City Thunder (14-8) vann nokkuð þægilegan sigur á Atlanta Hawks (14-10) þegar liðin mættust í NBA-deildinni í nótt, 107-94. Stórstjörnunar þrjár í liði Oklahoma; Kevin Durant, Russell Westbrook og Serge Ibaka, voru allir mjög góðar og skoruðu yfir 20 stig. Durant skellti í sjaldséða þrennu, en hann skoraði 25 stig, tók tólf fráköst og gaf tíu stoðsendingar. Þetta er aðeins sjöunda þrenna þessa fjórfalda stigakóngs NBA-deildarinnar á hans ferli. Westbrook skoraði 23 stig og bætti við tíu stoðsendingum en Ibaka skoraði 23 stig og tók tíu fráköst. Kent Bazemore var stigahæstur hjá Atlanta en hann skoraði 22 stig af bekknum. Durant fer á kostum: Chicago Bulls (12-8) batt enda á þriggja leikja taphrinu þegar liðið lagði Los Angeles Clippers (13-10) á heimavelli í nótt, 83-80. Chicago náði góðri forystu í þriðja leikhluta og barði svo af sér endurkomu gestanna sem unnu þó fjórða leikhlutann með sjö stigum. Þetta er fimmta útivallartap Clippers í níu leikjum. Pau Gasol var stigahæstur Chicago-liðsins með 24 stig og sex fráköst en Blake Griffin skoraði mest fyrir Clippers eða 18 stig. Það var nokkuð vel af sér gert hjá Griffin því hann spilaði bara 25 mínútur. Griffin var hent út úr húsi fyrir fyrir ljóta villu á Taj Gibson í þriðja leikhluta.Úrslit næturinnar: Brooklyn Nets - Philadelphia 76ers 100-91 Chicago Bulls - LA Clippers 83-80 OKC Thunder - Atlanta Hawks 107-94 Sacramento Kings - NY Knicks 99-97
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira