Rektor veitir loksins málverki af píku viðtöku Birgir Olgeirsson skrifar 22. desember 2015 16:02 Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, með málverkið góða sem Stefanía Pálsdóttir málaði. Vísir/GVA
Rektor Háskóla Íslands , Jón Atli Benediktsson, veitti málverki Stefaníu Pálsdóttur viðtöku í dag. Verkið málaði Stefanía fyrir um ári síðan sem mótvægi við öllum þeim fjölda listaverka af berrössuðum karlmönnum sem er í Háskóla Íslands. Þessum listaverkum af berrössuðum karlmönnum fylgir að sjálfsögðu vænn skammtur af getnaðarlimum karlmanna og var Stefanía þeirrar skoðunar að skólinn þyrfti að eignast listaverk þar sem nekt kvenna er í fyrirrúmi.Rektor var hæstánægður með verkið að sögn Stefaníu. Vísir/GVAStefanía hafði árangurslaust reynt að afhenda fyrrverandi rektor Kristínu Ingólfsdóttur málverkið. Þegar Jón Atli var í miðri kosningabaráttu fyrir rektorskjör fyrr í ár hafði hann verið spurður hvort hann vildi veita verkinu hennar Stefaníu móttöku. „Það var gert meira í gríni en alvöru, en hann lofaði því og minntist á það núna þegar hann tók á móti því,“ segir Stefanía. Áður en málverkið leit dagsins ljós ætlaði Stefanía að rita greinina „fallus á campus“. „En síðan langaði mig svo mikið að mála mynd af píku og gefa þeim,“ sagði Stefanía við Vísi um málið í mars síðastliðnum. Stefanía kláraði BA-gráðu í heimspeki og ritlist síðastliðið vor en stundar nú nám við myndlistarskólann í Reykjavík.
Menning Tengdar fréttir Hefur árangurslaust reynt að gefa rektor málverk af píku Stefanía Pálsdóttir málaði myndina sem mótvægi við öllum listaverkunum af berrössuðum körlum í Háskóla Íslands. 9. mars 2015 15:30 Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlist Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira
Hefur árangurslaust reynt að gefa rektor málverk af píku Stefanía Pálsdóttir málaði myndina sem mótvægi við öllum listaverkunum af berrössuðum körlum í Háskóla Íslands. 9. mars 2015 15:30