KR og Tindastóll verða í efstu tveimur sætunum og sæti níu til tólf eru klár. Það er samt sem áður mikil spenna í loftinu fyrir lokaumferðina þar sem sum lið geta tryggt sér heimavallarrétt í átta liða úrslitunum en önnur dottið alla leið niður í áttunda sæti sem myndi þýða afar erfiðar viðureignir á móti Íslands- og deildarmeisturum KR.
Staðan er líklega einföldust hjá nágrönnunum úr Reykjanesbæ. Vinni Njarðvík og Keflavík nefnilega sinn leik þá eru þau örugg með þriðja (Njarðvík) og fjórða sætið (Keflavík) sama hvernig fer í öðrum leikjum. Hin liðin sem geta hækkað eða lækkað í töflunni þurfa hins vegar að treysta líka á önnur úrslit til að komast sem hæst.
Sigur Njarðvíkinga á Stjörnunni í 21. umferðinni var mjög stór enda staða Njarðvíkurliðsins í innbyrðisleikjum á móti næstu liðum ekki góð. Sigurinn á Garðbæingum bjargaði því að fallið hefði getað orðið hátt í kvöld en Njarðvíkingar geta engu að síðustu misst frá sér þriðja sætið.
Keflvíkingar gætu ekki aðeins tryggt sér fjórða sætið með sigri á Haukum þeir myndi auk þess sjá til þess að það væru með heimavallarrétt í komandi einvígi á móti Haukum í átta liða úrslitunum. Haukarnir gætu líka tryggt sér heimavallarrétt í mögulegu einvígi við Keflavík en það væru nokkrar leiðir að þeirri niðurstöðu.
Haukarnir hafa verið á mikilli sigurgöngu en töpuðu naumlega á Króknum í síðasta. Haukar taka 3. sætið af Njarðvík verði liðin jöfn en stórt tap á móti Keflavík gæti sent liðið alla leið niður í sjötta sætið.
Stjörnumenn standa ágætlega í innbyrðisleikjum svo framarlega sem Þórsliðið blandar sér ekki í málið. Stórtap Stjörnuliðsins á móti Þór í fyrsta leiknum eftir bikarúrslitaleiknum gæti sent Garðbæinga alla leiðina niður í áttunda sætið og þar með inn í leiki á móti bikarsilfurliði KR í hefndarhug.
Grindvíkingar standa ekki vel í innbyrðisleikjum á móti liðunum í kringum sig og þurfa því ekki aðeins að vinna sinn leik við Snæfell heldur einnig treysta á það að hin liðin tapi sínum leikjum ætli þeir að hækka sig í töflunni.
Þórsarar eru í áttunda og síðasta sætinu og tveimur stigum á eftir liðunum í fimmta til sjöunda sæti en hagstæð úrslit Þórsliðsins á móti Stjörnunni og Grindavík munu hjálpa Þorlákshafnarbúum að ná sjötta sætinu vinni liðið Njarðvík í kvöld og úrslit úr öðrum leikjum eru hagstæð.
Fjórir af sex leikjum kvöldsins skipta máli fyrir lokastöðuna í deildinni eða allir nema leikur Skallagríms og Tindastóls í Borgarnesi og leikur Fjölnis og KR í Grafarvogi. Spennan verður því á Ásvöllum (Haukar-Keflavík), í Þorlákshöfn (Þór-Njarðvík), í Garðabæ (Stjarnan-ÍR) og í Stykkishólmi (Snæfell-Grindavík). Allir leikirnir hefjast klukkan 19.15.
Topplið KR og Tindastóll fylgjast samt örugglega með stöðu mála í öðrum íþróttahúsum. KR-ingar fá nefnilega þá að vita hvort mótherjinn verði Þór, Stjarnan eða Grindavík í átta liða og Stólarnir bíða spenntir eftir því hvort mótherjinn í fyrsta úrslitakeppnisleiknum á Króknum í þrjú ár verði Keflavík, Stjarnan, Grindavík eða Þór.
Hér fyrir neðan má sjá möguleika kvöldsins, þó í einfaldari útgáfu því möguleikarnir eru vissulega fleiri ef við eltum öll hugsanleg úrslit í lokaumferðinni. Strákarnir á karfan.is skrifuðu skemmtilega grein um „32 ef“ en hér höfum við tekið saman bestu og verstu úrslitin fyrir liðin fimm sem eiga möguleika á því að fara upp eða niður í töflunni í leikjum kvöldsins.
Á uppleið eða niðurleið í kvöld - möguleikar liðanna sex
Njarðvík
Bestu úrslitin - 3. sæti
Sigur á Þór
Verstu úrslitin - 4. sæti
Tap á móti Þór
Haukar vinna Keflavík
Haukar
Bestu úrslitin - 3. sæti
Sigur á Keflavík
Njarðvík tapar fyrir Þór
Verstu úrslitin - 6. sæti
Tap fyrir Keflavík með 7 stigum eða meira
Stjarnan vinnur ÍR
Grindavík tapar fyrir Snæfelli
Keflavík
Bestu úrslitin - 4. sæti
Sigur á móti Haukum
Verstu úrslitin - 7. sæti
Tap á móti Haukum
Grindavík og Stjarnan vinna sína leiki
Stjarnan
Bestu úrslitin - 5. sæti
Sigur á móti ÍR
Grindavík og Keflavík vinna bæði eða tapa bæði
Verstu úrslitin - 8. sæti
Tap á móti ÍR
Grindavík og Keflavík vinna sína leiki
Þór vinnur Njarðvík
Grindavík
Bestu úrslitin - 5. sæti
Sigur á móti Snæfelli
Keflavík og Stjarnan tapa sínum leikjum
Verstu úrslitin - 8. sæti
Tap á móti Snæfelli
Keflavík og Stjarnan vinna sína leiki
Þór vinnur Njarðvík
Þór Þorlákshöfn
Bestu úrslitin - 6. sæti
Sigur á móti Njarðvík
Grindavík og Stjarnan tapa sínum leikjum
Verstu úrslitin - 8. sæti
Tap á móti Njarðvík
Margt getur breyst á lokakvöldinu í Dominos-deild karla
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
