Ringulreið í samgöngum vegna verkfalla í Þýskalandi jón hákon halldórsson skrifar 21. maí 2015 07:45 Starfsmenn lestarfyrirtækisins Deutsche Bahn hafa ítrekað farið í verkfall undanfarna mánuði, með verulegu tjóni fyrir þýska hagkerfið. NordicPhotos/afp
Mikil röskun varð á samgöngum í Þýskalandi í gær eftir að verkfall lestarstjóra hófst. Fjölmörgum lestarferðum, bæði styttri ferðum og lengri, var frestað. Claus Weselsky, formaður GDL, verkalýðsfélags lestarstjóra, gaf ekkert upp um það hvenær verkfallinu lýkur en hann sagði að það myndi allavega vara í fimm daga. Verkalýðsfélagið hefur boðað röð verkfalla til að krefjast fimm prósenta launahækkunar fyrir þá 20 þúsund lestarstjóra sem eru í félaginu og styttri vinnuviku. Verkalýðsfélagið krefst þess líka að fá að semja fyrir hönd annarra starfsmanna á lestum, til dæmis veitingastarfsfólks. Tvö hundruð þúsund manns starfa hjá lestarfélaginu Deutsche Bahn. Fyrirtækið hefur boðið 4,7 prósenta launahækkun og eingreiðslu upp á 1.000 evrur, eða 148 þúsund krónur. Aftur á móti samþykkir fyrirtækið ekki að verkalýðsfélagið semji fyrir aðra starfsmenn á lestum. Verkfallið sem hófst í gær var hið níunda sem skellur á síðastliðna ellefu mánuði og kemur í kjölfar fimm daga verkfalls fyrr í maí. Það var lengsta verkfall í 21 árs sögu Deutsche Bahn. Talið er að 5,5 milljónir manna ferðist daglega með lest í Þýskalandi. Hagfræðingar telja að verkfallið fyrr í mánuðinum hafi kostað þýska hagkerfið 750 milljónir evra, eða 111 milljarða króna.
Verkfall 2016 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira