Innflytjandi kannar bótarétt vegna verklagsreglna MAST Óli Kristján Ármansson skrifar 4. júní 2015 07:45 Sums staðar í verslunum er farið að grynnka verulega í kistum sem hafa að geyma erlenda matvöru sem ekki hefur verið hægt að flytja inn í verkfalli BHM. Það hefur nú staðið í um átta vikur. vísir/daníel
Dæmi eru um að aðrar vörur en eftirlitsskyld matvæli séu fastar á hafnarbakka og fái ekki tollafgreiðslu vegna þess að þær eru í gámi með eftirlitsskyldum varningi. Sérfræðingar Matvælastofnunar (MAST) þurfa að votta innflutning á margvíslegum matvælum, en sú vinna liggur niðri vegna verkfalla BHM. Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innness, segir nokkur slík dæmi hjá fyrirtækinu og veit um fleiri hjá öðrum sem flytja inn vörur. Hvernig vinnist úr málum fari dálítið eftir erlendum birgjum þegar um sé að ræða blandaðar sendingar. Oft sé þá bara um að ræða einn reikning og farmbréf. „Svo getur verið einhver ein vara í gámnum sem stöðvar afgreiðsluna. Hjá Kaupási var nýlega greint frá dæmi þar sem hunang var í gámi og hjá okkur er nýlegt dæmi upp poppmaís sem stöðvaði afgreiðsluna,“ segir hann. Sé birgirinn ekki tilbúinn að gefa út nýjan reikning þannig að brjóta megi upp sendinguna og tollafgreiða í hlutum þá sitji öll sendingin föst.Magnús Óli ÓlafssonHjá Innnesi segir Magnús Óli þó nokkur dæmi um vörur sem stöðvað hafi heilu sendingarnar. Þar séu, auk poppmaíssins, mjöl, spírulínusafi, kaffirjómaduft, rúgur, spelthveiti og kínóafræ. „Þarna er MAST búið að setja sér ákveðið verklag um skoðun dýralækna þó svo að kollegar þeirra erlendis séu búnir að gera könnun á vörunni og gefa út heilbrigðisvottorð,“ segir Magnús Óli. Innnes láti nú kanna lögmæti verklags MAST, sem líkur séu á að brjóti í bága við EES-reglur. Magnús Óli vísar til nýlegs erindis Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) til landbúnaðarráðuneytisins um að EES-samningurinn kveði á um að traust eigi að ríkja á milli aðildarríkja sambandsins, líkt og áréttað hafi verið í rökstuddu áliti ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, í fyrra, vegna innflutningstakmarkana á fersku kjöti. Í móttökulandi varningsins eigi að nægja að taka stikkprufur, en ekki skoða allan eftirlitsskyldan varning sem hingað komi. Komi í ljós að vinnulag MAST standist ekki skoðun þá gæti innflutningsfyrirtæki átt rétt á bótum. „Þetta gæti þýtt gríðarlegar kröfur frá innflytjendum,“ segir Magnús Óli. Síðustu tölur hjá fyrirtækinu hljóði upp á að á hafnarbakkanum bíði tollafgreiðslu vörur fyrir yfir 30 milljónir króna. Gera megi ráð fyrir að hluti varningsins liggi undir skemmdum. Þá verði fyrirtækin fyrir sölutjóni vegna þess að innflutningur stöðvast. „Það er ljóst þegar saman er tekið að þetta eru háar upphæðir.“ Lárus M.K. Ólafsson, lögmaður SVÞ, segir svar hafa borist við erindinu til ráðuneytisins 28. maí síðastliðinn. Í því komi fram að ráðuneytið hafi til athugunar verklag og eftirlit með innflutningi matvæla sem komi frá ríkjum EES. „Ráðuneytið mun hins vegar ekki geta lokið athugun á framkvæmd innflutningseftirlits fyrr en sérfræðingar Matvælastofnunar á inn- og útflutningssviði koma úr verkfalli Bandalags háskólamanna,“ segir í svarinu.Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunar.Fleiri eru í verkfalli en dýralæknar einir Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunar (MAST), áréttar að þar á bæ sé unnið eftir íslenskri löggjöf um innflutning matvæla og hún kunni að vera öðruvísi en annars staðar á evrópska efnahagssvæðinu. Til dæmis séu hér hömlur á kjötinnflutningi sem ekki sé annars staðar að finna. „Við fylgjum þessari löggjöf sem er í landinu þannig að þetta verður að ræða við ráðuneytið,“ segir hann. Í gámum kunni hins vegar að vera hinar og þessar vörur sem snerti hina og þessa löggjöf. „Í sumum tilvikum er þetta plöntuheilbrigðislöggjöf og í öðrum tilvikum er það dýraheilbrigðis- eða matvælaöryggislöggjöf.“ Eftirlit með þessum þáttum heyri undir fleiri en dýralækna eina sem líka séu í verkfalli hjá MAST, svo sem plöntusjúkdómafræðinga, matvælafræðinga og líffræðinga.
Verkfall 2016 Mest lesið Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Veður Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Fleiri fréttir Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Sjá meira