Hótaði að gera dóttur parsins mein færu þau ekki til Íslands Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. febrúar 2016 14:20 Hollenska parið var stöðvað með 209 þúsund e-töflur í húsbíl á Seyðisfirði í september í fyrra auk 10 kílóa af MDMA-mulningi. Vísir/GVA
Verjendur hollenska parsins sem sætir ákæru fyrir stórfelldan innflutning á fíkniefnum til landsins með Norrænu í september segja ekkert í framburði ákærðu sem bendi til þess að konan hafi verið meðvituð um tilgang ferðarinnar. Þvert á móti séu engin sönnunargögn eða nokkuð annað sem tengi hana við fíkniefnaflutninginn. Atriði sem saksóknari telji til um hvort halda hafi átt til Spánar, um verslunarferð til Belgíu, framburð dóttur og nágranna séu ekki bara ósönnuð atriði heldur einnig aukaatriði sem skipti ekki svo miklu máli. Ekkert bendi til þess að hún hafi vitað af fíkniefnunum í niðursuðudósunum. Maðurinn hefur frá upphafi játað sök í málinu en konan neitað. Saksóknari telur þau hafa ákveðið fyrirfram að yrðu þau gripin myndi maðurinn taka á sig alla sök. 209 þúsund e-töflur og 10 kíló af MDMA-mulningi fundust í húsbíl þeirra við komuna til landsins með Norrænu í september síðastliðnum.Fólkið ók frá Hollandi í gegnum Belgíu og Þýskaland og þaðan til Danmerkur þar sem farið var um borð í Norrænu.Vísir/GVAHótun frá hættulegum HollendingiGísli Auðbergsson, verjandi mannsins, benti fyrir dómi á maðurinn hefði borið því við að hafa kynnst vafasömum mönnum í fíkniefnaheiminum sem hefðu ákveðið einhliða að hann skuldaði þeim peninga. Þeir hafi hótað að gera fósturdóttur hans mein færi hann ekki í ferðina til Íslands. Hann hefði áður neitað að fara en sá ekki annað í stöðunni en að fara í ferðina. Hefði hættulegum glæpamanni frá Hollandi verið sigað á hann og haldið uppi fyrrnefndri hótun. Þess hefði verið krafist að hann tæki konu sína með til að auka trúverðugleika ferðarinnar. Gísli sagði að þótt parið hefði mögulega sagt nágrannakonu og dóttur frá því að ferðalagið væri til Spánar en ekki Íslands þá væri ekki hægt að fullyrða að konan hefði gerst sek um fíkniefnaflutning. Þá væri 500 kílómetra krókurinn til Belgíu ekki mikill krókur á evrópskan mælikvarða þar sem hámarkshraði er meiri. Maðurinn væri vanur að aka 600-700 kílómetra á dag. Þau höfðu auk þess tvo sólarhringa til að koma sér til Danmerkur en ökutími þangað væri áætlaður sjö og hálfur klukkutími. Því væri ekkert óeðlilegt við að fara til Belgíu. Þá væri framburður um hvort einhver frændi hefði verið heimsóttur eða ekki algjört aukaatriði í málinu. Annþór og Börkur afplána þunga ofbeldisdóma á Litla-Hrauni.vísir/e.ól.Fimm ára dómur hæfilegurEkki væri óeðlilegt að maðurinn hefði náð að skreppa út úr verslunarmiðstöðinni og hitt skipuleggjendur án þess að konan setti spurningamerki við það. Pör héldust ekki alltaf í hendur í langri heimsókn í verslunarmiðstöð. Auk þess væri ekki eins og maðurinn hefði þurft að fela dósirnar lengi fyrir konu sinni. Um einhverjar mínútur hefðu verið að ræða, þ.e. þegar ekið var úr verslunarmiðstöðinni og á hótel að kvöldi og svo að morgni þegar ekið var frá hóteli í verslun þar sem matarinnkaup fóru fram. Gísli sagði frásögn þeirra að vissu leyti ruglingslega en þó ekki ótrúverðuga. Þá hefði maðurinn ekki verið meðvitaður um magn fíkniefnanna. Hafa verði í hug að maðurinn var fórnarlamb hótana og refsiramminn í málaflokknum sé skrýtinn. Hvað eigi að vera eftir fyrir skipuleggjendur þegar þeir nást og hljóta dóm? Taldi hann eðlilegt að maðurinn fengi fimm ára dóm fyrir brot sitt sem hann hafi játað frá fyrsta degi.Engar sannanir gegn konunniGuðmundur St. Ragnarsson, verjandi konunnar, tók undir með Gísla að öllu leyti í sínum málflutningi og krafðist þess að konan yrði sýknuð í málinu . Engin bein eða óbein sönnunargögn væru komin fram. Útskýringar dóttur um að hún hafi verið hrædd þegar lögregla ræddi við hana og svo ekki þorað að leiðrétta framburð sinn varðandi Spánarferð væri skiljanleg. Auk þess skipti frásögn um Spánarferð ekki máli enda sannað hún ekki neitt. Ekki hefði verið sýnt fram á nein samskipti konunnar við skipuleggjendur. Hvorki með sms, símtölum eða tölvupósti. Málið hafi legið ljóst fyrir frá upphafi og hefði mátt einfalda alla meðferð þess og gefa út ákæru fyrr enda ljóst að engin sönnunargögn væru sem sýndu fram á sekt konunnar. Engin lífsýni eða fingraför hefðu fundist sem skiptu máli. Þá gagnrýndi Guðmundur að lögregla hefði ekki reynt að fylgja þeim eftir og setja upp tálbeituaðgerð. Tollgæslan hefði farið beint í að tæma bílinn. Ekki hefðu fengist nein gögn frá Belgíu eins og upptökur úr eftirlitsmyndavélum við verslunarmiðstöðina eða verslunina þar sem matvælin voru keypt daginn eftir. Einnig væri gagnrýnisvert að upplýsingar um hlerunaraðgerð lögreglu á Litla-Hrauni hefði ekki ratað í gögn málsins og þannig verið haldið leyndum fyrir ákærðu og verjendum. Krafðist Guðmundur sýknu en til vara vægustu mögulegu refsingar yrði konan fundin sek. Reikna má með því að dómur verði kveðinn upp innan fjögurra vikna.
Tengdar fréttir Fíkniefni upp á milljarð króna: Deila um niðursuðudósir og húsbíllinn verður fluttur til Reykjavíkur Saksóknari reynir að sýna fram á sök konunnar í málinu og segir manninn margsaga. Verjendur eru ósáttir við að hafa ekki verið upplýstir um að samtöl parsins voru hleruð. 2. febrúar 2016 13:30 Saksóknari telur erfitt að rökstyðja annað en tólf ára refsingu Hollenskt par flutti til Íslands rúmlega 200 þúsund e-töflur og tíu kíló af MDMA-mulningi. Dómurinn á sér enga hliðstæðu að mati varahéraðssaksóknara. 15. febrúar 2016 12:27 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira
Fíkniefni upp á milljarð króna: Deila um niðursuðudósir og húsbíllinn verður fluttur til Reykjavíkur Saksóknari reynir að sýna fram á sök konunnar í málinu og segir manninn margsaga. Verjendur eru ósáttir við að hafa ekki verið upplýstir um að samtöl parsins voru hleruð. 2. febrúar 2016 13:30
Saksóknari telur erfitt að rökstyðja annað en tólf ára refsingu Hollenskt par flutti til Íslands rúmlega 200 þúsund e-töflur og tíu kíló af MDMA-mulningi. Dómurinn á sér enga hliðstæðu að mati varahéraðssaksóknara. 15. febrúar 2016 12:27