Sjá einnig: Kynna vélhundinn Spot
Auk þess starfar fyrirtækið með hernaðaryfirvöldum í Bandaríkjunum.
Nýjasta myndband fyrirtækisins er af nýjustu útfærslu vélmennisins Atlas. Óhætt er að segja að vélmennið sýni einstaka hreyfigetu á ójöfnu yfirborði. Þá getur vélmennið staðið upp falli það niður. Auk þess má sjá að vélmennið getur lyft kössum og jafnvel elta þá, séu þeir færðir til.
Eflaust hugsa einhverjir um Skynet þegar þeir horfa á þetta myndband. Við skulum bara vona að vélmennið muni ekki eftir manninum sem hrindir því.