Golf

Ellefu ára fór holu í höggi á vellinum hans Tigers fyrir framan goðið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Taylor Crozier, ellefu ára kylfingur frá Corpus Christi, mun ekki gleyma gærdeginum svo lengi sem hann lifir.

Crozier var einn af nokkrum ungmennum úr unglingagolfsambandi suður-Texas sem var boðið að spila fyrsta hringinn á nýjum velli, The Playgrounds, í Montgomery í Texas sem Tiger Woods hjálpaði til við að hanna.

Völlurinn er tíu holur og ætlaður fyrir fjölskylduskemmtun eða hágæða æfingar í stutta spilinu. Hann er hluti af Bluejack National-vellinum, en Tiger kom einnig að hönnun hans.

Taylor Crozier mætti á fyrsta teig og gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á fyrstu braut sem er 74 metra par þrjú hola. Eðlilega ætlaði allt um koll að keyra á vellinum, en Tiger kom hlaupandi að drengnum og faðmaði hann.

Þetta var fyrsta höggið sem er slegið á vellinum og það var þessi ellefu ára drengur sem opnaði The Playgrounds með holu í höggi.

Þetta magnaða högg stráksins má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×