Níunda þrenna tímabilsins hjá Westbrook | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. mars 2016 07:04
Russell Westbrook, leikstjórnandi Oklahoma City Thunder, var í miklum ham í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lagði Sacramento Kings á útivelli, 131-116. Westbrook hlóð í níundu þrennu sína á tímabilinu með því að skora 20 stig, taka þrettán fráköst og gefa fimmtán stoðsendingar. Hann hjálpaði liðinu aftur á sigurbraut, en það er sem fyrr í þriðja sæti vesturdeildarinnar. Myndband af Westbrook ná þrennunni má sjá í spilaranum hér að ofan. Kevun Durant skoraði 27 stig og tók tíu fráköst fyrir OKC, en DeMarcus Cousins, miðherji Sacramento, var að vanda lang bestur í liði heimamanna með 35 stig og tólf fráköst. Sacramento er búið að tapa þremur leikjum í röð og á fyrir höndum fjóra útileiki í röð. Liðið er í tíunda sæti vesturdeildarinnar. Eftir tvo tapleiki í röð komst Cleveland Cavaliers aftur á sigurbraut í nótt þegar liðið vann sterkan útisigur á Indiana Pacers, 100-96. LeBron James var hvíldur í síðasta tapleik Cavs en sneri aftur með látum í nótt og skoraði 33 stig auk þess sem hann tók fimm fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og stal tveimur boltum. Kyrie Irving bætti við 22 stigum fyrir Cleveland en hjá Indiana var Monta Ellis stigahæstur með 28 stig. Paul George skoraði 23 stig, tók átta fráköst og gaf sex stoðsendingar. Cleveland er sem fyrr á toppnum í austurdeildinni með 42 sigra og 17 tapleiki, en Indiana er í áttunda sætinu með 31 sigur og 29 tapleiki.Úrslit næturinnar: Cleveland Cavaliers - Indiana Pacers 100-96 Washington Wizards - Philadelphia 76ers 116-108 Boston Celtics - Utah Jazz 100-95 Milwaukbee Bucks - Houston Rockets 128-121 Denver Nuggets - Memphis Grizzlies 96-103 Sacramento Kings - OKC Thunder 116-131 LA Clippers - Brooklyn Nets 105-95Staðan í deildinni.John Wall skorar 37 stig fyrir Washington: Giannis Antetokounmpo hleður í þrennu fyrir Bucks:
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira