Vatnsendamál sent aftur til héraðsdóms Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. mars 2016 17:40 Hæstiréttur hefur lagt fyrir Héraðsdóms Reykjaness að taka hið 75 milljarða Vatnsendamál til efnismeðferðar. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli hóps erfingja jarðarinnar Vatnsenda við Elliðavatn gegn Kópavogsbæ vegna eignarnáms á Vatnsenda. Þarf Héraðsdómur að taka málið til efnismeðferðar að nýju. Máli erfingjanna á Vatnsenda gegn Kópavogsbæ var vísað frá dómi í Héraðsdómi Reykjaness í janúar vegna vanreifunar. Taldi Héraðsdómur að erfingjarnir hefðu ekki gert grein fyrir því hvað fælist í beinum eignarétt að Vatnsenda og því ómögulegt að komast að því hvort að Kópavogsbær væri bótaskyldur. Hefur Hæstiréttur fellt úr gildi þennan frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjaness. Segir í dómi Hæstaréttar að kröfur erfingjanna á hendur Kópavogsbæ séu svo skýrar og málatilbúnaður svo glöggur að öðru leyti að ekkert sé því til fyrirstöðu að dómur verði á þær lagðar. Leggur Hæstiréttur það því fyrir Héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar. Málaferlin þessi hófust eftir að Hæstiréttur komst í mars síðastliðnum að þeirri niðurstöðu að ráðstafa skyldi beinum eignarrétti til fimmtán erfingja Sigurðar Hjaltested, en ekki sonarsonar hans, Þorsteins Hjaltested. Hann fékk milljarða frá Kópavogsbæ í bætur, eftir að bærinn tók hluta jarðarinnar eignarnámi. Málið á sér langan aðdraganda, en deilur um jörðina hafa nú staðið yfir í nærri fimmtíu ár. Miklir fjárhagslegir hagsmunir eru í húfi, ekki síst vegna þess að jörðin er eitt helsta byggingarland Kópavogsbæjar.
Deilur um Vatnsendaland Kópavogur Tengdar fréttir Krefja Kópavogsbæ um 75 milljarða Erfingjar Sigurðar K. Hjaltested, fyrrum ábúenda á Vatnsenda, hafa stefnt Kópavogsbæ vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. 28. apríl 2014 16:20 Réttir eigendur taldir missa af Vatnsendafé „Ég vil þetta allt upp á borðið,? segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, um uppgreiðslu bæjarsjóðs á skuldabréfum sem gefin voru út í tengslum við eignarnám á hluta Vatnsendalandsins. Guðríður, ásamt Hjálmari Hjálmarssyni, bæjarfulltrúa Næst besta flokksins, óskaði í bæjarráði eftir svari við því hvers vegna Kópavogsbær hafi í 27. maí 2013 07:00 Deilan um Vatnsenda: "Þetta splundraði bara fjölskyldunni" Yngsti sonur Sigurðar Hjaltested, sem var eigandi Vatnsenda á sjöunda áratugnum, segir niðurstöðu Hæstaréttar í gær mikinn sigur en í raun bara upphafið að endinum. Hann segist finna til léttis að viðurkennt hafi verið að Vatnsendi sé enn í eigu dánarbús föður síns. Það hafi tekið verulega á þegar hann og fjölskylda hans voru borin út af heimili sínu fyrir tæpum 45 árum. 4. maí 2013 19:30 Máli erfingjanna á Vatnsenda vísað frá dómi Snerist um 75 milljarða skaðabótakröfu. 29. janúar 2016 12:05 Áfram deilt um Vatnsenda í Kópavogi Þorsteinn Hjaltested hefur kært niðurstöðu Sýslumannsins í Reykjavík um að ógilda ekki þinglýsingu á afsali fyrir landinu Vatnsendakriki, sem Kópavogur afsalaði sér til Reykjavíkur. 13. október 2013 15:43 Þorsteinn Hjaltested ekki eini réttmæti erfingi Vatnsendajarðarinnar Hæstiréttur felldi úr gildi dóm héraðsdóms. 5. mars 2015 16:41 Vatnsendi ekki í eigu Þorsteins - 45 ára gömlum deilum lokið Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur að jörðin Vatnsendi í Kópavogi teljist til eigna dánarbús Sigurðar Kristjáns Lárussonar Hjaltested sem lést árið 1966, en ekki Þorsteins Hjaltested, móður hans og systkina, sem hafa verið réttmætir eigendur jarðarinnar síðustu ár. 3. maí 2013 18:21 Vendingar í Vatnsendamálinu: Frávísunarkröfu Kópavogsbæjar hafnað og málinu skipt í tvo hluta Erfingjarnir fara fram á 75 milljarða króna í skaðabætur frá Kópavogsbæ. 29. september 2015 11:16 Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira
Krefja Kópavogsbæ um 75 milljarða Erfingjar Sigurðar K. Hjaltested, fyrrum ábúenda á Vatnsenda, hafa stefnt Kópavogsbæ vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. 28. apríl 2014 16:20
Réttir eigendur taldir missa af Vatnsendafé „Ég vil þetta allt upp á borðið,? segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, um uppgreiðslu bæjarsjóðs á skuldabréfum sem gefin voru út í tengslum við eignarnám á hluta Vatnsendalandsins. Guðríður, ásamt Hjálmari Hjálmarssyni, bæjarfulltrúa Næst besta flokksins, óskaði í bæjarráði eftir svari við því hvers vegna Kópavogsbær hafi í 27. maí 2013 07:00
Deilan um Vatnsenda: "Þetta splundraði bara fjölskyldunni" Yngsti sonur Sigurðar Hjaltested, sem var eigandi Vatnsenda á sjöunda áratugnum, segir niðurstöðu Hæstaréttar í gær mikinn sigur en í raun bara upphafið að endinum. Hann segist finna til léttis að viðurkennt hafi verið að Vatnsendi sé enn í eigu dánarbús föður síns. Það hafi tekið verulega á þegar hann og fjölskylda hans voru borin út af heimili sínu fyrir tæpum 45 árum. 4. maí 2013 19:30
Máli erfingjanna á Vatnsenda vísað frá dómi Snerist um 75 milljarða skaðabótakröfu. 29. janúar 2016 12:05
Áfram deilt um Vatnsenda í Kópavogi Þorsteinn Hjaltested hefur kært niðurstöðu Sýslumannsins í Reykjavík um að ógilda ekki þinglýsingu á afsali fyrir landinu Vatnsendakriki, sem Kópavogur afsalaði sér til Reykjavíkur. 13. október 2013 15:43
Þorsteinn Hjaltested ekki eini réttmæti erfingi Vatnsendajarðarinnar Hæstiréttur felldi úr gildi dóm héraðsdóms. 5. mars 2015 16:41
Vatnsendi ekki í eigu Þorsteins - 45 ára gömlum deilum lokið Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur að jörðin Vatnsendi í Kópavogi teljist til eigna dánarbús Sigurðar Kristjáns Lárussonar Hjaltested sem lést árið 1966, en ekki Þorsteins Hjaltested, móður hans og systkina, sem hafa verið réttmætir eigendur jarðarinnar síðustu ár. 3. maí 2013 18:21
Vendingar í Vatnsendamálinu: Frávísunarkröfu Kópavogsbæjar hafnað og málinu skipt í tvo hluta Erfingjarnir fara fram á 75 milljarða króna í skaðabætur frá Kópavogsbæ. 29. september 2015 11:16