Hanna er konan á bak við litabækurnar sem allir elska. Í dag kemur bókin Dagdraumar eftir hana út á Íslandi en heimurinn bíður einnig í ofvæni eftir næstu litabókinni hennar, Sommarnatt, sem kemur út í apríl á heimsvísu.
Hanna kom til Íslands í gær og verður viðstödd litapartí í A4 Skeifunni í kvöld frá klukkan 20.00 í tilefni af útgáfu Dagdrauma. Þar mun hún segja fólki frá bakgrunni sínum og hvernig hún rakst inn í þennan litaheim.
Allar teikningar Hönnu eru handunnar og kýs hún helst að nota blek við listsköpun sína. Hanna er þekkt fyrir að leyfa smáatriðunum að njóta sín en henni finnst skemmtilegast að teikna blóm, tré, hús og dýr. Innblásturinn fær hún frá náttúrunni og oft eru teikningar hennar sveipaðar dulúð og draumkenndum tilfinningum.

Smáatriðin eru áberandi í teikningum Hönnu og litabækurnar hennar hafa rokið út eins og heitar lummur. Framleiðslan hefur aukist mikið undanfarin ár vegna mikillar eftirspurnar og vinsælda. En hvað ætli taki langan tíma að teikna mynd sem hefur þessi óteljandi smáatriði?
„Það fer alveg eftir því hversu flókin myndin er, ef ég er í stuði og teikna heila opnu getur það tekið allt að tvo daga, en ef ég er að gera eina mynd tekur það einn dag. Ég verð nánast aldrei óþolinmóð þegar ég er að skapa og teikna, en það getur komið fyrir. Sérstaklega þegar ég er alveg að verða búin með mynd og er farin að sjá fyrir mér næstu mynd. Svo hefur það líka komið fyrir þegar ég er að renna út á tíma,“ segir Hanna Karlson og bætir við að það að teikna taki tíma og er alveg sátt við það.
Hanna hefur teiknað myndir frá því hún man eftir sér, en stíll hennar hefur þróast mikið enda er ferillinn langur hjá þessari stjörnulistakonu sem hefur vakið athygli um allan heim.
„Ég hef verðið að teikna alveg síðan ég man eftir mér, í upphafi var ég mest í grafík teikningum og málverkum. Þessar svokölluðu blekteikningar sem ég er að gera núna hef ég verið að þróa síðustu ár. Þegar ég var að byrja að teikna gerði ég blekmyndir því ég var mikið að vinna með silkiþrykk. Ég teiknaði mína eigin hönnun og þrykkti á föt. Eftir talsverðan tíma í þeirri vinnu ákvað ég að einbeita mér hægt og rólega einungis að teikningum og ákvað að halda mig við hreinar blekteikningar. Stuttu síðar fór ég að gera litabækurnar og þá fór ég að þróa teikningarnar mínar ennþá meira. Ég þróaði myndirnar þannig að það væri auðveldlega hægt að teikna þær en á sama tíma væru þær líka flottar einar og sér án lita,“ segir Hanna létt í bragði.