Golf

Palmer tekur ekki heiðurshögg fyrir Masters

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þarna má sjá höfðingjana Palmer, Nicklas og Player saman á Masters í fyrra. Það var líklega í síðasta skiptið sem þeir slá allir saman golfhögg.
Þarna má sjá höfðingjana Palmer, Nicklas og Player saman á Masters í fyrra. Það var líklega í síðasta skiptið sem þeir slá allir saman golfhögg. vísir/getty
Það er hefð fyrir því að golfgoðsagnirnar þrjár - Arnold Palmer, Jack Nicklaus og Gary Player - taki heiðurshögg í upphafi Masters-mótsins.

Þrenningin nær ekki öll að taka högg í ár því hinn 86 ára gamli Palmer mun ekki sveifla drævernum að þessu sinni.

Palmer meiddist á öxl um jólin 2014 og harkaði af sér til þess að slá högg í fyrra. Hann ætlar ekki að gera það í ár en ætlar að mæta á svæðið engu að síður.

Þetta er í fyrsta sinn í tíu ár sem Palmer tekur ekki þátt í þessari athöfn með því að sveifla kylfu og verður að teljast ólíklegt að hann geri það aftur úr þessu.

Palmer hefur slegið þessu heiðurshögg lengi en Nicklaus byrjaði að slá með honum árið 2012. Player bættist svo í hópinn árið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×