Chalmers fékk enga Bonneau-meðferð hjá Memphis Grizzlies Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2016 17:00 Mario Chalmers og Stefan Bonneau. Vísir/Getty
Mario Chalmers hefur misst samning sinn hjá Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta eftir að hafa slitið hásin í leik á móti Boston Celtics í fyrri nótt. Mario Chalmers sleit hásina sína þegar 6:57 voru eftir af þriðja leikhlutanum í leiknum á móti Boston en hann var á sínu fyrsta tímabili með liðinu. Forráðamenn Memphis Grizzlies voru ekkert að bíða boðanna heldur sögðu strax upp samningi sínum við Chalmers sem þeir fengu í skiptum við Miami Heat fyrr á tímabilinu. Mario Chalmers fékk því enga Bonneau-meðferð hjá Memphis Grizzlies en Njarðvíkingar hafa hugsað vel um Bandaríkjamanninn Stefan Bonneau, þrátt fyrir að hann hafi slitið hásin fyrir tímabilið. Chalmers er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Miami Heat þar sem hann varð tvisvar sinnum NBA-meistari eða 2012 og 2013. Mario Chalmers var með 10,8 stig og 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik með Memphis Grizzlies á þessu tímabili. Hann var með 8,8 stig og 3,8 stoðsendingar að meðaltali á átta tímabilum með Miami. „Hann hefur verið í mikilvægu hlutverki hjá okkur í vetur og átti mikinn þátt í árangri liðsins, hvort sem hann var í byrjunarliðinu eða kom inn af bekknum," sagði Chris Wallace, framkvæmdastjóri Memphis Grizzlies. „Málið er að tímabilið er búið hjá honum og leikmannahópurinn er orðinn þunnur eftir öll þessi meiðsli. Það var því nauðsynlegt að losa sæti í hópnum," sagði Wallace. Mario Chalmers er ekki fyrsti leikmaður Memphis Grizzlies sem spilar ekki meira á þessu tímabili. Stórstjarnan Marc Gasol þurfti að fara í aðgerð á fæti og þá hafa fleiri lykilmenn verið frá vegna meiðsla.
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira