James bauð upp á þrennu í Madison Square Garden Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. mars 2016 11:09 James og félagar eru á toppnum í Austurdeildinni. vísir/getty
Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. LeBron James var með þrefalda tvennu þegar Cleveland vann öruggan sigur á New York Knicks á útivelli, 93-107. James skoraði 27 stig, tók 11 fráköst og gaf 10 stoðsendingar en þetta var þriðja þrennan hans á tímabilinu. Kevin Love var stigahæstur hjá Cleveland með 28 stig. Kevin Durant og Russell Westbrook skoruðu samtals 60 stig í sigri Oklahoma City Thunder á San Antonio Spurs, 111-92. Durant var með 31 stig og Westbrook 29 fyrir Oklahoma sem hefur unnið sjö leiki í röð. Gregg Popovich, þjálfari San Antonio, hvíldi marga af sínum sterkustu leikmönnum í nótt. David West og Jonathan Simmons skoruðu 17 stig hvor fyrir Spurs sem er í 2. sæti Vesturdeildarinnar. Þá gerði Boston Celtics góða ferð til Phoenic og vann þriggja stiga sigur á heimamönnum, 99-102. Boston, sem er í 3. sæti Austurdeildarinnar, var með örugga forystu í hálfleik, 41-58, en var nálægt því að kasta sigrinum frá sér í lokin. Isiah Thomas var stigahæstur í liði Boston en hann skoraði 28 stig gegn sínum gömlu félögum. Devin Booker skoraði mest fyrir Phoenix, eða 21 stig.Úrslitin í nótt: NY Knicks 93-107 Cleveland Oklahoma 111-92 San Antonio Phoenix 99-102 Boston Brooklyn 120-110 Indiana Orlando 111-89 Chicago New Orleans 91-115 Toronto Detroit 95-112 Atlanta Minnesota 84-93 Utah Milwaukee 91-115 Charlotte Portland 108-105 Philadelphia
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira