Slæmt ástand vega í Bandaríkjunum hefur reynst sjálfkeyrandi bílum erfitt. Ástandið hefur leitt til aukins kostnaðar fyrirtækja eins og Tesla og Volvo og gert verkfræðingum erfitt fyrir. Bílarnir eiga meðal annars erfitt með að átta sig á staðsetningu sinni á vegum vegna lélegra merkinga.
Elon Musk, eigandi Tesla, hefur nýlega lýst málinu sem „klikkuðu“ og kvartaði hann yfir slæmum merkingum. Þá sýndi Volvo sjálfkeyrandi bíl á bílasýningu í Los Angeles á dögunum. Bíll Volvo stoppaði ítrekað og skammaði yfirmaður Volvo í Bandaríkjunum borgarstjóra Los Angeles fyrir það að bílinn greindi ekki merkingar á milli akreina.
Reuters fréttaveitan bendir á að um 65 prósent vega í Bandaríkjunum eru taldir vera í slæmu ásigkomulagi. Þá geti verið mikill munur á skiltum og ástandi vega eftir fylkjum og ríkjum.
Því hafa framleiðendur neyðst til þess að koma fyrir fleiri og betri skynjurum á bílnum. Það leiðir til hærri kostnaðar.
Í dagsljósi eru myndavélar notaðar til að greina línur á vegum, umferðarljós og umferðarskilti. Á nóttinni er hins vegar notast við radar- og ljósbylgjur.
Slappt ástand vega gerir verkfræðinga gráhærða
Samúel Karl Ólason skrifar

Mest lesið



Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com
Viðskipti innlent

Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun
Viðskipti innlent

Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar
Viðskipti innlent

Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið
Viðskipti innlent


Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða
Viðskipti innlent