Þetta olli talsverðum ruglingi, ekki aðeins hjá landsmönnum, heldur einnig erlendis og hjá þingflokki Framsóknar.
Sjá einnig: Sigmundur ekki sagt af sér heldur stigið til hliðar um óákveðinn tíma

Framsóknarmenn bíða útskýringa
„Útskýringin sem við fáum núna er að þetta sé bara tæknilegt og stjórnskipunarlegt mál. Orðalagið hafi klúðrast í tilkynningunni,“ útskýrir Willum Þór Þórsson, meðstjórnandi þingflokksins, en hann sat á óformlegum fundi stjórnar þingflokksins þegar Vísir náði af honum tali. Tilkynningin sem hann vísar í er sú sem barst erlendum miðlum frá forsætisráðuneytinu.
„Það er enginn vafi á niðurstöðu þingflokksins í gærdag.“
Hér má sjá tillöguna sem samþykkt var á þingflokksfundi í gær orðrétt:
„Forsætisráðherra leggur til að varaformaður flokksins taki við embætti forsætisráðherra svo það megi verða til að ríkisstjórnin geti lokið þeim mikilvægum verkum sem hún hefur unnið að og varða mikilvæga þjóðarhagsmuni.“
#Iceland: press release says PM has not resigned but he'll be temporarily replaced by Progressive vice-chairman. Odd pic.twitter.com/SiV6yDQCsf
— Benjamin Leruth (@BenLeruth) April 5, 2016
„Það er ekki þannig að þetta sé tímabundið. Hann er að stíga til hliðar, það liggur alveg fyrir,“ segir Karl Garðarsson þingmaður nú í morgun.
„Við samþykktum að hann myndi stíga til hliðar sem forsætisráðherra. Hann kæmi bara sem óbreyttur. Það var ekkert rætt um að það yrði tímabundið,“ segir Páll Jóhann Pálsson og vísar í tillögu forsætisráðherrans sjálfs af þingflokksfundi í gær.

Haraldur Einarsson þingmaður lítur á það þannig að Sigmundur Davíð hafi sagt af sér embætti forsætisráðherra í gær. Hins vegar sé annað mál hvort Sigmundur eigi afturhvarf í pólitík.
„Ég held að hann verði að gera upp við sig hvort hann sinni þingmennsku eða ekki. Þingflokkurinn getur ekki gert það,“ útskýrir Haraldur. Sigmundur er á þingi eftir að hafa fengið lýðræðislegt kjör; kjósendur landsins kusu að veita Sigmundi umboð til þess að sitja á þingi.
„Svo leiðir tíminn það í ljós hvort hann eigi afturhvarf í pólitík. Ég held að hann þurfi að fá staðfestingu frá skattayfirvöldum um að hann hafi verið að segja satt áður en hann kemur aftur.“

„Hann nýtur allavega míns trausts,“ svarar Haraldur spurður um hvort Sigmundur Davíð njóti trausts í embætti formanns Framsóknarflokksins.
„Þar með er ég ekki að viðurkenna það að mér finnist í lagi að eiga félög á þeim stöðum sem hafa verið í umræðunni.“
Hinir viðmælendur Vísis segja einnig að Sigmundur hafi traust þeirra í stöðu formanns flokksins. Það sé ekki þingflokksins að ákveða hver sé formaður Framsóknarflokks heldur þurfi að taka slíkar ákvarðanir á breiðari grundvelli.
„Við tókum bara þetta fyrsta skref, út frá þjóðarhagsmunum,“ segir Willum Þór. Hann segir að aðrar umræður, um stöðu Sigmundar sem formanns eða stöðu hans sem þingmanns, verði að taka í samstarfi við alla Framsóknarmenn.
En í hverju liggur þá misskilingurinn?
Það leikur enginn vafi á því að Sigmundur Davíð hefur sagt af sér embætti forsætisráðherra, það hefur verið samþykkt af þingflokki Framsóknarflokksins.
Hins vegar hefur Sigmundur Davíð ekki formlega beðist lausnar úr embætti sínu en samkvæmt 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands þarf forseti að veita honum lausn. Þetta er þó einungis tæknilegt atriði. Sigmundur Davíð telst forsætisráðherra landsins tæknilega þar til forseti veitir honum formlega lausn en hann hefur sagt af sér embætti og nýtur ekki stuðnings flokks síns í embætti forsætisráðherra.