Golf

Ólafía Þórunn er í 19. sæti: Ætla að slappa aðeins meira af á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Daníel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, lék á einu höggi undir pari á öðrum keppnisdegi á Terre Blanche golfmótinu á LET Access atvinnumótaröðinni í Frakklandi í dag.

Ólafía Þórunn lék holurnar átján á 72 höggum, fékk alls þrjá fugla og tvo skolla. Ólafía var hinsvegar í fjölmörgum færum að fá fleiri fugla og kom sér ítrekað í góð færi á hringnum.

Hún hefur þar með leiki tvo fyrstu hringina á 74 og 72 höggum og er á pari eftir tvo fyrstu keppnisdagana.

Þessi spilamennska skilaði Ólafíu Þórunni í 19. til 25. sætið fyrir lokahringinn á morgun. Þrír áhugakylfingar eru í þremur efstu sætunum en Luna Sobron frá Spáni er þar efst á ellefu höggum undir pari.

Holur fimm og sautján hafa reynst íslenska kylfingnum vel en hún hefur verið með fugla á þeim á báðum hringum.

„Það var meiri stöðugleiki í golfinu mínu í dag og lengdarstjórnunin var betri í dag en í gær. Það var smá pirringur í mér af og til. Það var hinsvegar mjög fínt að vera einn undir en mér leið eins og ég væri yfir pari vallar. Á morgun ætla ég að reyna að hafa gaman þessu og slappa aðeins meira af,“ sagði Ólafía Þórunn í viðtali á heimasíðu Golfsambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×