Íslenskur blær yfir mótmælum á Möltu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 11. apríl 2016 10:29 Mótmæli á Möltu Vísir/AFP
Nokkur þúsund mótmælendur komu saman fyrir framan skrifstofu Joseph Muscat, forsætisráðherra Möltu, á laugardag til að krefjast afsagnar hans eftir að nöfn tveggja samherja forsætisráðherrans birtust í Panama-skjölunum. Auk þess kröfðust mótmælendur þess að Konrad Mizzi, heilbrigðis- og orkumálaráðherra, og Keith Schembri, aðstoðarmaður forsætisráðherrans, segðu einnig af sér, en nöfn þeirra birtust í Panama-skjölunum. Simon Busuttill, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, segir Muscat hafa valdið Möltu skömm og að hann hafi misst siðferðislegt vald til að leiða landið. Forsætisráðherrann hefur sagt að hann muni taka ákvörðun varðandi framtíð Mizzi og Schembri þegar hann hefur kynnt sér málið frekar, en bæði Mizzi og Schembri neita að hafa gert neitt rangt. Stjórnarandstaðan hyggst leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórn landsins sem hefur verið við völd frá árinu 2013. Malta er lítið eyríki í Evrópu en þar búa um 445.000 manns. Joseph Muscat hefur verið forsætisráðherra landsins síðan 2013 þegar flokkur hans, Verkamannaflokkurinn, steypti Þjóðernisflokknum af stóli eftir 15 ára setu í ríkisstjórn.
Panama-skjölin Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira