Portland komið áfram | Tveir oddaleikir í Austurdeildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2016 11:00 Damian Lillard og CJ McCollum fallast í faðma eftir sigurinn á Clippers í nótt. vísir/getty
Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Portland Trail Blazers sló vængbrotið lið Los Angeles Clippers út með þriggja stiga sigri, 106-103, í sjötta leik liðanna í Portland. Portland tapaði fyrstu tveimur leikjunum í einvíginu en kom til baka, vann fjóra leiki í röð og tryggði sér sæti í undanúrslitum þar sem liðið mætir meisturum Golden State Warriors. Damian Lillard var stigahæstur í liði Portland með 28 stig og framfarakóngur ársins, CJ McCollum, kom næstur með 20 stig. Jamal Crawford skoraði 32 stig fyrir Clippers og DeAndre Jordan skoraði 15 stig og tók 20 fráköst. Liðið lék án Chris Paul og Blake Griffin sem meiddust í leik fjögur. Indiana Pacers tryggði sér oddaleik gegn Toronto með sigri, 101-83, í sjötta leik liðanna í Austurdeildinni. Toronto gat tryggt sér farseðilinn í undanúrslitin með sigri í Indiana í nótt en heimamenn voru á öðru máli. Paul George fór fyrir sínum mönnum með 21 stigi og 11 fráköstum en allir byrjunarliðsmenn Indiana skoruðu 12 stig eða meira í leiknum. Cory Joseph og DeMarre Carroll skoruðu 15 stig hvor fyrir Toronto sem á oddaleikinn á heimavelli sínum. Það verður sömuleiðis oddaleikur í einvígi Miami Heat og Charlotte Hornets en Miami vann sjötta leik liðanna í nótt, 97-90. Dwayne Wade sýndi gamla takta í liði Miami, skoraði 23 stig og hitti úr sínu fyrsta þriggja stiga skoti síðan í desember. Loul Deng átti einnig góðan leik, skoraði 21 stig og hitti úr níu af 14 skotum sínum utan af velli. Kemba Walker var langstigahæstur í liði Charlotte með 37 stig. Al Jefferson kom næstur með 18 stig.Úrslitin í nótt: Portland 106-103 LA Clippers Indiana 101-83 Toronto Charlotte 90-97 MiamiPortland og Clippers í draugsýn Dwayne Wade og Kemba Walker háðu einvígi Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira