Steph Curry stakk sér til sunds meðal áhorfenda | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2016 18:15
Margir stuðningsmenn Golden State Warriors tóku örugglega andköf í fyrsta leikhlutanum í nótt þegar besti leikmaður NBA-deildarinnar tók kannski aðeins of mikla áhættu í baráttu um boltann. Golden State Warriors liðið mætti til leiks 1-0 undir á móti Oklahoma City Thunder í úrslitum Vesturdeildarinnar og átti á hættu að fara 2-0 undir í næstu tvo leiki í Oklahoma City. Atvikið sem fékk stuðningsfólk NBA-meistaranna til að svitna gerðist þegar aðeins níu mínútur voru liðnar af leiknum. Stephen Curry stakk sér þá til sunds inn í miðjan áhorfendaskarann þegar lítið var eftir af þriðja leikhlutanum og Golden State liðið var sex stigum yfir. Stephen Curry hefur verið að glíma við meiðsli í úrslitakeppninni og hefur misst af leikjum vegna bæði ökkla- og hnémeiðsla. Hann er ekki enn orðin alveg hundrað prósent og þá er ekki sniðugt að vera fórna skrokknum eins og hann gerði í þessu tilfelli. Steph Curry var þarna kominn með níu stig í leiknum en öll þeirra komu rétt áður og Curry leit út fyrir að vera að komast í gang. Þeir svartsýnustu óttuðust jafnvel að Curry væri aftur meiddur enda leið svolítill tími þar til að hann stóð aftur upp. Bandarísku fjölmiðlarnir höfðu þó meira gaman af þeim sem nýtti tækifærið og myndaði Curry í bak og fyrir á meðan hann náði áttum á gólfinu. Stuðningsmenn Golden State gátu þó andað léttar því Steph Curry slapp ómeiddur og átti eftir að skora 19 stig til viðbótar í öruggum sigri Golden State. Hann skoraði reyndar fimmtán þeirra stiga á innan við tveggja mínútna kafla í þriðja leikhlutanum en Golden State liðið komst tuttugu stigum yfir á þessum tveimur Curry-mínútum. Í spilaranum fyrir ofan má sjá þessa flugferð Stephen Curry upp í stúku frá því í nótt.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira