Jákvæð reynsla af rafrænu eftirliti Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 26. maí 2016 23:19 Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur fór mikinn í Ríkisútvarpinu í gær og hélt því fram að breytingar á lögum um fullnustu refsinga hafi verið sérhönnuð að hvítflibbaglæpamönnum. Slíkt er fjarri sanni. Staðreyndin er sú að breytingin var almenn og er fordæmalaust að prófessor við Háskóla Íslands sem jafnframt var skipaður í nefnd fyrir sex árum af þáverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra sem hafði það markmið að endurskoða ákvæði laga um fullnustu refsinga í heild sinni skuli halda slíku fram. Nefndinni þá var m.a. ætlað að taka til athugunar hvort ástæða væri til að rýmka og fjölga vistunarúrræðum utan fangelsa og skoða áherslur er lúta að meðferðarúrræðum, heilbrigðisþjónustu o.fl., skipulag fangelsismála og önnur þau atriði sem nefndin teldi ástæðu til að bæta og breyta. Það var samdóma álit þáverandi nefndarmanna, þar á meðal Helga að rétt væri að gera strax breytingar á lögum um fullnustu refsinga með það að markmiði að fjölga úrræðum og rýmka fullnustu utan fangelsa. Nefndin skilaði frumvarpi þess efnis til ráðuneytisins í lok árs 2010 og gerði frumvarpið ráð fyrir upptöku rafræns eftirlits sem fullnustuúrræðis í lok afplánunar og rýmkun á samfélagsþjónustu. Frumvarpið var síðar samþykkt á Alþingi. Í ljósi þess hversu vel hefur tekist til við afplánun með rafrænu eftirliti var ákveðið að ganga enn lengra við endurskoðun laga um fullnustu refsinga sem tók gildi í mars á þessu ári. Í athugasemdum frumvarpsins sem síðar varð að lögum um fullnustu refsinga í mars sl. segir um rýmkun rafræns eftirlits: „Greinin svarar til 24. gr. a gildandi laga að undanskildu því að lagt er til að hámarksrefsing sú sem heimilt er að afplána undir rafrænu eftirliti verði 360 dagar. Greinin kom ný í gildandi lög á haustmánuðum 2011. Úrræðið hefur gefist vel og hefur 132 föngum verið veitt heimild til að afplána undir rafrænu eftirliti og hafa aðeins sjö fangar rofið skilyrði eða rúm 5%. Í ljósi jákvæðrar reynslu þykir tímabært að rýmka þetta úrræði. Um afplánun utan fangelsa gilda ströng skilyrði sem skerða athafnafrelsi viðkomandi aðila og krefst því mikils aga af hans hálfu.“ Fangelsismálastofnun var sama sinnis. Í umsögn Fangelsismálastofnunar til Alþingis segir m.a.: „Í frumvarpinu er lagt til að rafrænt eftirlit verði aukið, þ.e. að fangar geti afplánað síðustu tólf mánuði refsingar sinnar undir slíku eftirliti (í stað átta mánaða nú). Með sömu rökum og að framan leggur Fangelsismálastofnun þunga áherslu á að þetta verði samþykkt þar sem mjög góð reynsla hefur verið af úrræðinu frá því það var lögfest árið 2011. Um er að ræða afar heppilegt fullnustuúrræði sem stuðlar að farsælli endurkomu fanga í samfélagið á ný og er mikilvægur hlekkur í því að aðlaga fangann smám saman að samfélaginu á ný auk þess sem það er mun ódýrara en vistun í fangelsi. Telur stofnunin mjög til bóta að rýmka úrræðið enn frekar eins og lagt er til í frumvarpinu.“ Helgi segir í sama viðtali á RÚV að þessum reglum hafi verið breytt á síðustu metrunum í mars á þessu ári þannig að þær hafi passað mjög vel fyrir tiltekin brotahóp sem hafi verið dæmdur fyrir efnahagsbrot. Er það helst að skilja að hann vilji opinbera rannsókn á því sem gerði það að verkum að þessi tiltekna breyting var gerð. Það er að segja hverjir komu þar að máli. Álitsgjafi í eigin verkum Mikilvægt er að gæta að staðreyndum þegar menn ætla að gerast álitsgjafar sér í lagi í eigin verkum þar sem að fram kemur í nefndaráliti meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um frum¬varp til laga um fulln¬ustu refs¬inga að meðal þeirra sem leitað hafi verið til hafi verið Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Háskóla Íslands. Ekki nóg með það heldur skilaði prófessorinn einnig inn umsögn til Alþingis um frumvarpið. Í þeirri umsögn hans segir: „Nýtt frumvarp til laga um fullnustu refsinga er löngu tímabært og horfir til framfara að mörgu leyti. Undirritaður tók þátt í undirbúningi frumvarpsins á byrjunarstigi og þekkir því vel til innihaldsins. Ýmis jákvæð nýmæli eru í lögunum sem ætlað er að auðvelda föngum og dómþolum að aðlagast samfélaginu á farsælan hátt eftir afplánun. Auknir möguleikar á samfélagsþjónustu eftir 12 mánaða óskilorðsbundinn dóm, tilkoma fjölskylduleyfa í tvo sólarhringa, rýmkað rafrænt eftirlit og möguleiki á lausn eftir þriðjung refsitímans fyrir brotamenn yngri en 21 árs eru allt þættir sem ber að fagna.“ Í þessu sambandi ber að hafa í huga að enginn þingmaður greiddi atkvæði gegn lögunum. Eina breytingin sem Alþingi gerði á frumvarpinu í mars var að samræma rýmkað rafrænt eftirlit fyrir fyrstu 12 mánuði refsingar til samræmis við lengri dóma. Allir þingmenn voru sammála þeirri breytingu, jafn þingmenn meirihlutans sem og þingmenn minnihlutans. Ég tók virkan þátt í þessari vinnu sem formaður Afstöðu og átti nokkur samskipti við Helga og vildi hann gjarnan ganga lengra í hinum ýmsum atriðum er varðar betrun í stað refsingar. Það er því svolítið skrítið að prófessorinn sem var í nefndinni sem skipuð var árið 2010 og kom á rafrænu eftirliti og hafði aðkomu að samningu frumvarpsins nú þar sem rafræna eftirlitið var rýmkað skuli nú gerast sérstakur sérfræðingur í sínum eigin verkum og kalla eftir rannsókn í stað þess að skoða sína eigin umsögn. Ég held að allir sem þekkja til þessa málaflokks geti verið sammála um að nýju lögin eru meingölluð en eitt af því fáu sem er gott og jákvætt í lögunum er einmitt rýmkað rafrænt eftirlit sem er þáttur sem ber að fanga, eins og Helgi sjálfur orðaði það. Ég hef sjálfur gagnrýnt harðlega nýju lögin og bent á að ekki hafi verið hlustað á sérfræði álit við gerð laganna og held að með hverjum deginum sem líður sjáum við að það voru mikil mistök hjá Innanríkisráðherra að gera ekki heildstæða pólitíska endurskoðun á lögunum með betrun í huga. Ég get þó ekki annað en fordæmt menn eins og Helga, sem koma með aðdróttanir um að alþingi hafi samið lög fyrir fámennan hóp á meðan þessu lög eru almenn og allir fangar njóta góðs af þeim og þar á meðal ég. Fjöldi fanga hefur nú þegar farið fyrr á áfangaheimili, á rafrænt eftirlit og jafnvel losnað úr afplánun. Rafrænt eftirlit er hluti af endurhæfingu og endurhæfing þýðir færri glæpir! Frelsissviptingin ein og sér er refsing, en því minni munur sem er á milli lífs innan sem utan fangelsa, því auðveldari verða umskiptin frá fangelsi yfir í frelsið. Við eigum Evrópumet í endurkomum í fangelsin og erum svo langt á eftir örðum löndum í betrun en við skulum ekki eyðileggja þó það jákvæða sem hefur verið gert. Það á ekki og má ekki fara í manngreiningarálit þegar kemur að lögum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alþingi Fangelsismál Guðmundur Ingi Þóroddsson Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun