Raggi Nat æfir með Dallas Mavericks: „Ætlaði fyrst ekki að trúa þessu“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. júní 2016 18:54
Pétur Guðmundsson, eini Íslendingurinn sem spilað hefur í NBA, vakti athygli NBA-liðsins Dallas Mavericks á íslenska landsliðsmanninum Ragnari Nathanaelssyni og fer hann til æfinga hjá Dallas í þrjá daga í næstu viku. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld en Ragnar verður í viku hjá Pétri í Seattle áður en hann heldur til Dallas. „Ég ætlaði ekki að trúa þessu fyrst. Það var bara stress og ég þurfti alveg þrjá daga til að fatta að þetta væri raunverulegt. Þeir vildu sjá meira af mér og buðu mér því að sýna hvað í mér býr,“ segir Ragnar. „Ég verð mældur og skoðaður og ef þeim lýst á mig þá bjóða þeir mér í sumarmót með þeim þar sem þeir fá að sjá mig spila á móti fleiri leikmönnum. Stefnan er sett á það.“ Risinn viðurkennir að hafa verið í betra standi. „Við pössum á að halda okkur í formi þegar að við vitum að það eru landsliðsverkefni framundan. Við höldum okkur í formi á sumrin. Við erum búnir að vera að æfa mikið og spila mikið og svo fæ ég viku hjá Pétri til að koma mér í topp stand,“ segir Ragnar Nathanaelsson. Alla fréttina má sjá í spilaranum hér að ofan.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira