LeBron James: Ég gerði mistök Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2016 14:00 Stephen Curry og LeBron James. Vísir/Getty
LeBron James, leikmaður Cleveland Cavaliers, hefur breytt um taktík og segir nú að Steph Curry hafi eftir allt saman átt skilið að vera kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar. Golden State Warriors, lið Curry, og Cleveland Cavaliers, lið James, mætast í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar og er fyrsti leikurinn á heimavelli Golden State í kvöld. Allt einvígið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. James talaði um það opinberlega, skömmu eftir að Curry fékk fullt hús í kosningunni um mikilvægasta leikmann deildarinnar, að það væri túlkunaratriði hvort að Curry væri sá besti. Curry fékk fullt hús í kosningunni en LeBron James varð í þriðja sæti á eftir þeim Curry og Kawhi Leonard hjá San Antonio Spurs. Þetta var annað árið sem James varð þriðji í kjörinu og hann varð síðan í öðru sæti á eftir Kevin Durant tímabilið 2013-14. Ummæli James vöktu talsverða athygli en hann hefur sjálfur verið fjórum sinnum kosinn besti leikmaður NBA síðast fyrir 2012-13 tímabilið þegar hann fékk verðlaunin annað árið í röð. „Í fyrsta lagi vil ég taka það fram að ég gerði mistök með því að svara spurningunni. Ég vil samt taka það fram að ég orðaði þetta ekki eins og þetta var sett upp gagnvart Steph," sagði LeBron James. „Steph er án nokkurs vafa mikilvægasti leikmaðurinn í okkar deild. Hann er frábær körfuboltamaður og það er magnað sem hann gerir fyrir okkar deild," sagði James. Steph Curry var með 30,1 stig, 5,4 fráköst og 6,7 stoðsendingar að meðaltali í leik á tímabilinu en meðaltöl LeBron James voru 25,3 stig, 6,5 fráköst og 6,8 stoðsendingar. LeBron James var með hætti skotnýtingu en mun lægri vítanýtingu og þriggja stiga skotnýtingu.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira