Ariana Grande eins og dúkka fyrir nýjan Viva Glam varalit Ritstjórn skrifar 17. júní 2016 15:15 Ariana Grande er ein þekktasta söngkonan í Hollywood í dag. Mynd/Getty
Í gegnum tíðina hafa Viva Glam varalita auglýsingarnar frá MAC skartað mörgum af helstu stjörnum samtímans, eins og til dæmis Miley Cyrus, Nicki Minaj, Lady Gaga, Madonna og Ariana Grande. Varalitirnir slá alltaf í gegn og seljast upp nánast samstundis. Ariana Grande er andlit varalitarins í annað skiptið og hafa auglýsingarnar loksins verið gerðar opinberar. Í gegnum tíðina hefur Ariana spilað sig út fyrir að vera barnaleg með því að vera með hátt tagl og í stelpulegum fötum en hún hefur þó verið að hrissta þann stimpil af sér upp á síðkastið. Í nýju auglýsingunum lítur Ariana út fyrir að vera dúkka með hátt tagl og slaufu í hárinu, í bleikum lakkskóm og hvítum skrautsokkum. Líklegast er hún að gera grín af sjálfri sér enda hefur hún sjálf sagt að hún geri sér fullkomlega grein fyrir því hvernig fólk lítur á hana en hún klæði sig eftir eigin höfði og pælir ekki í hvað öðrum finnst. Það má þó ekki gleyma að Ariana er hæfileikarík tónlistarkona og öll salan á MAC varalitunum rennur til góðgerðarmála. Fjölmiðlar vestanhafs segja nýju auglýsingarnar frekar barnalegar.Myndir/MACNýi Viva Glam liturinn sem Ariana auglýsing er mjög flottur og mun líklega seljast upp eins og hinn liturinn sem Ariana var andlit fyrir.
Mest lesið Kristen Stewart rakaði af sér hárið Glamour Beyonce mætt með stelpugengið sitt í nýju herferð Ivy Park Glamour Förðunarstrákarnir á Youtube Glamour Óskarinn 2017: Verst klæddu stjörnurnar Glamour Kate Moss prýðir forsíðu Vogue í 38. skiptið Glamour Allt í plasti hjá Calvin Klein Glamour Rauðir skór og síðir kjólar stóðu uppúr hjá Ganni Glamour Barn númer tvö á leiðinni Glamour Miranda Kerr gifti sig í Dior Glamour Vetrarhvítt yfir hátíðarnar Glamour