Glamour ætlar ekki að láta sig vanta og munum við fylgjast grannt með tónlistarveislunni og ekki síst gestunum, hverjir eru hvar og spotta trendin meðal hátíðargesta hér á vefnum, sem og á samfélagsmiðlunum okkar, Instagram og Snapchat (Glamouriceland).
Í nýjasta tölublaði Glamour er að finna fullt af innblæstri fyrir sumarið þegar kemur að klæðaburði og hvar það besta er að finna í íslenskum verslunum.
Eins og spáin segir til um þá verður hálfskýjað og lítilsháttar rigning. Á hátíðum sem þessum þar sem dagarnir eru langir og maður vill geta dansað og staðið löndum stundum er lykilatriði að vera í rétta skóbúnaðinum. Hvort sem það eru klassísku Hunter stígvélin eða gróf stígvél eins og mótorhjólastígvélin sem klikka seint. Þykk peysa, svartar leðurbuxur, mótorhjólastígvél og svo bomber jakki er til dæmis tilvalinn klæðaburður.
Svo má auðvitað ekki gleyma föðurlandinu, vaxjakkanum, derhúfunni, sólgeraugunum, bakpokanum og góða skapinu. Það eina sem skiptir máli er auðvitað að njóta hátíðarinnar.
Fylgstu með Glamour á Instagram og Snapchat. Við munum gefa þér hátíðina beint í æð um helgina.
Glamour x Secret Solstice 2016


