Hetja var Arnór Ingvi og eins og gerist með hetjur vilja margir eiga eitthvað í hetjunum. Sumir höfðu alltaf trú á honum og spáðu glæstri framtíð, aðrir voru með honum í bekk eða áttu börn með honum í bekk, aðrir þekkja þann sem klippir hárið á honum og þannig mætti ltengi telja.

„Við foreldrarnir erum uppalin í Keflavík og bjuggum alltaf þar,“ segir hjúkrunarfræðingurinn Una Kristín Stefánsdóttir, móðir Arnórs Inga. „En svo keyptum við okkur hús í Njarðvík!“
Þar með flækast málin. Arnór Ingvi byrjaði þriggja ára gamall að æfa fótbolta hjá Njarðvík þar sem Freyr Sverrisson var þjálfari. Una segir Frey hafa sinnt mikilvægu hlutverki í uppeldi Arnórs Ingva
„Hann gekk í skóla í Keflavík og var aldrei í skóla í Njarðvík,“ segir Una en … „hann var í körfu í Njarðvík.“
Arnór Ingvi hætti í körfu til að einbeita sér að fótboltanum og eftir fjórða flokk, þegar hann var 15 ára, skipti hann um félag.
„Honum fannst hann þurfa meiri ögrun svo hann ákvað að fara yfir í Keflavík.“

Hinn sautján ára gamli þreytti líka frumraun sína með meistaraflokki Keflavíkur sumarið 2010, aðeins sautján ára. Hann kom inn á sem varamaður í tveimur leikjum og opnaði markareikning sinn í efstu deild með marki í 4-1 sigri á ÍBV í lokaumferðinni.
Arnór Ingvi var lykilmaður í liði Keflavíku í Pepsi-deildinni sumurin 2011, 2012 og 2013 áður en atvinnumennskan bankaði á dyrnar.
En hvort er Arnór Ingvi þá Njarðvíkingur eða Keflvíkingur?
„Ég held að hann sé bara ekta Reyknesbæingur,“ segir Una Kristín móðir hans. „Ég held hann líti helst þannig á það sjálfur.“