Júlíspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Slúður er rödd andskotans Sigga Kling skrifar 24. júní 2016 14:30
Hjartans Vatnsberi. Þú ert að fara inn í merkilegan tíma. Þú ert að fara inn í tíma heiðarleika. Þú ert að fara inn í tíma þar sem að sannleikurinn skiptir ofsalega miklu máli, þú átt eftir að heyra hver sannleikurinn er í hlutum sem þig óraði ekki fyrir. Mörgum spurningum þínum verður svarað og sumt af því er svolítið erfitt fyrir þig. Ronaldo, hinn mikli meistari, er Vatnsberi eins og þú og hann er búinn að láta tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur svo að skilaboðin til þín eru: Vertu alveg pollrólegur. Alveg sama hvað gengur á. Sparaðu stóru orðin, því kannski er eitthvað af þessum erfiðleikum í kringum þig að einhverju leyti einmitt þér að kenna. Segðu bara það sem þú getur staðið við. Með friði verður framtíðin miklu bjartari.Seinni parturinn á sumrinu kemur með svo dásamlega sterkar tilfinningar, sem láta þér líða eins og þú svífir á bleiku skýi. Þessar tilfinningar sýna þér ástina í öðru ljósi, sem kenna þér að meta hlutina svo rosalega rétt.Mörg ykkar, elsku Vatnsberarnir mínir, munu hafa svo mikil áhrif á aðra. Það er, ef þið notið leiðtogahæfileika ykkar rétt og látið ekki tilfinningarnar skína í gegnum öll orðin, sérstaklega ekki ef þið verðið reið, samanber Ronaldo eftir leikinn við Íslendinga. Geir Sveinsson er líka einn af okkar dásamlegu Vatnsberum, hann er að hafa svo mikil áhrif á landsliðið í handbolta.Þú ert sá sem mun leggja línurnar eða verða fyrirmynd svo margra næstu mánuði. Þú þarft að sjá þig í því hlutverki og vanda orðaval þitt. Mundu að slúður er rödd andskotans, svo hlustaðu ekki á það og taktu alls ekki þátt í því. Þú stoppar slúður með því að bera það ekki skrefinu lengra, og það er það eina sem þú þarft að hugsa. Taktu slúðrið ekki nærri þér sjálfur, því að í öllu slúðri er öfundin fólgin, og það væri aldrei slúðrað um þig ef þú værir einskis verður. Það er visst hrós að fólk nenni að slúðra um einstaklinginn því að sú manneskja er alla vega merkilegri en hún heldur sig vera.Þú ert í þeim tíma sem þú hefur aldrei litið eins vel út, sjálfstraust þitt er á uppleið með hverri sekúndunni. Gleymdu gærdeginum, því í honum felast engin tækifæri. Þú verður svo feginn því aukna frelsi sem þú færð og ánægður með sjálfan þig, vegna þess hversu vel þú munt standa með þér. Þú ert mikilmenni, svo farðu vel með þá sem þú telur að séu óvinir þínir, þú munt græða á því þegar til lengri tíma er litið. Knús og koss. Frægir Vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts, mannauður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira