Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. júní 2026 16:31 Ryan Reynolds rifjaði upp óhugnanlegt slys sem hann lenti í átján ára þegar ölvaður ökumaður keyrði á hann. Getty Hollywood-stjarnan Ryan Reynolds rifjaði upp alvarlega áverka sem hann hlaut eftir að ölvaður ökumaður ók yfir hann í Vancouver fyrir þrjátíu árum síðan. Reynolds sem var átján ára gamall hafði sjálfur verið að skemmta sér, ákvað að skilja bíl sinn eftir og var fótgangandi á heimleið þegar ekið var á hann.
Ryan Reynolds fór í viðtal í vikunni hjá tímaritinu GQ með samstarfsfélaga sínum og meðeiganda í Wrexham AFC, Rob McElhenney, þar sem þeir voru spurðir spjörunum úr meðan þeir settu saman hillu frá Ikea. Reynolds grínaðist með erfiðleikana við samsetninguna og líkti því við það þegar hann dvaldi stórslasaður í fjórar vikur á sjúkrahúsi eftir að ölvaður ökumaður bíls ók yfir hann. „Ég var ekinn niður af ölvuðum ökumanni eftir að hafa tekið mjög jákvæða og skynsamlega ákvörðun fyrir ungan átján ára karlmann. Varði fjórum vikum á spítala,“ sagði Reynolds, sem er 49 ára í dag, um atvikið. Rob McElhenney og Ryan Reynolds hlæja alla leið í bankann þessa dagana.Vísir/Getty Hann hafði sjálfur verið að skemmta sér á bar skammt frá heimili sínu og ákvað að skilja bíl sinn eftir og ganga frekar heim. Á leið yfir götu kom ökumaður á fullri ferð og ók hann niður. „[Ég] braut öll bein á vinstri hliðinni minni,“ sagði Reynolds og bætti McElhenne þá við: „Það er í fyrsta skiptið sem ég heyri af þessu!“ „Hann keyrði svo harkalega á mig, bíllinn hans var óökufær,“ sagði Reynolds og þakkaði lækninum Dr. Meek fyrir að að hafa tjaslað honum saman eftir slysið. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Reynolds tjáir sig um slysið, hann rifjaði það einnig upp í viðtali við CTV News árið 2011 og sagði þar frá alvarlegum afleiðingum þess. Eftir slysið hafi honum verið haldið sofandi í þrjá daga og alls þurft að dvelja á sjúkrahúsi í fjórar vikur. „Ég man að pabbi minn sat þarna [með] ælufat. Og ég hef greinilega verið að gubba meðan ég var meðvitundarlaus,“ sagði Reynolds í því viðtali. „Ekkert segir ást eins og það að mála einhvern í þriggja daga gömlum ginkokteilum. Drekkti manninum frá toppi til táar í ælunni minni.“ Slysið er ekki það eina sem Reynolds hefur verið viðriðinn því árið 2017 lést áhættuleikkonan Joi Harris við tökur á kvikmyndinni Deadpool 2 þar sem Reynolds var í aðahlutverki. Harris hafði verið að taka upp áhættuatriði á mótorhjóli fyrir leikkonuna Zazie Beets í miðbæ Vancouver og var ekki með hjálm að beiðni framleiðandanna. Hún ók þar á gangstéttarbrún, kastaðist af mótorhjólinu og lést á vettvangi.
Bandaríkin Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira