Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. júní 2026 13:00 Það var rosalegt fjör í brúðkaupi Dua Lipa og Callum Turner um helgina á Sikiley. Arnold Jerocki/Getty Images Sumarið er tími ástarinnar þar sem fjölmörg pör nýta góða veðrið til að ganga í heilagt hjónaband. Stórstjörnur eru þar ekki undanskildar en fyrsta stóra stjörnubrúðkaupið fór fram síðastliðna helgi þegar söngkonan Dua Lipa og leikarinn Callum Turner fögnuðu ást sinni með vinum og vandamönnum á Sikiley.
Brúðkaupið var auðvitað hið glæsilegasta og má telja líklegt að mörg verðandi brúðhjón dragi einhvern innblástur frá því. Hér eru sjö hlutir sem tískurisinn Vogue telur að verði að sumarbrúðkaupstrendi eftir veisluhöld Lipa og Turner. Stólaborðar Dua Lipa gifti sig í ítölsku sólinni og var athöfnin utandyra. Stólarnir í athöfninni vöktu athygli var sem hvítir silkiborðar voru festir við þá með slaufu. Fallegt og krúttlegt smáatriði. Stólaborðar einstaklega lekkerir.Instagram @lauravandall Bróderaðir blævængir og servíettur Það er sífellt að verða vinsælla að fá allt sérhannað fyrir brúðkaupið, allt frá fatnaði yfir í smáatriði eins og blævængi og servíettur. Þau höfðu merkt smáhlutina með dagsetningu brúðkaupsins, skammstöfun þeirra hjóna og uppáhalds tilvitnun þeirra: „Stay mad with me forever.“ Sæt smáatriði.Instagram @lauravandall „Retro“ myndakassar Gamaldags myndakassar eru stöðugt að verða vinsælli í brúðkaupum en Dua Lipa og Callum Turner voru með slíkan í brúðkaupinu með bróderað tjald merkt nöfnum þeirra brúðhjóna. Dua og Calum merkt myndakassanum.Instagram @antoinebillore 18. aldar kerti og kertastjakar Hjónin giftu sig í kastala frá barokk-tímabilinu og því var margt í 18. aldar glæsileika-stíl. Þar á meðal háu flottu kertin og vínflöskur voru notaðar sem kertastjakar í bland við stóra og glæsilega stjaka. Glæsilegt borðhald. Instagram @antoinebillore Tilkomumiklar skreytingar og leikmyndir Vintage bílar, antík speglar, plaköt af gömlum kvikmyndum og bókahillur voru meðal skreytinga í brúðkaupi stjarnanna. Bílarnir voru meðal annars notaðir sem matarvagnar í glæsilegri kantinum. Flugeldar Brúðkaupsveisla stjórstjarnanna entist til sex morguninn eftir og gestir stigu trylltan dans. Í öllu fjörinu kemur ekki á óvart að kvöldið hafi svo verið toppað með glæsilegri flugeldasýningu, en slíkt húllum-hæ er líka einstaklega vinsælt í brúðkaupum á Ítalíu. Flugeldar í Sikiley eru ansi flottir. Riccardo Lombardo/REDA/Universal Images Group via Getty Images Sundlaugapartý daginn eftir Þegar verið er að halda áfangastaðabrúðkaup er einstaklega vinsælt að bjóða gestum í sundlaugapartý daginn eftir. Það þykir sömuleiðis bæði góð og elegant leið til að leyfa þynnkunni hægt og rólega að líða hjá. Gerður í Blush var einmitt með brúðkaup á Ítalíu á dögunum og bauð gestunum að sjálfsögðu í sundlaugapartý daginn eftir veisluhöldin.
Brúðkaup Ítalía Hollywood Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira