Ein flottustu tilþrif fótboltasumarsins litu dagsins ljós á Leiknisvellinum í Breiðholti í kvöld þar sem nafnarnir Leiknir Reykjavík og Leiknir Fáskrúðsfirði eigast við í Inkasso-deildinni í fótbolta.
Markalaust var fyrstu 19 mínúturnar en á þeirri 20. var Kristjáni Páli Jónssyni, hægri kantmanni Reykjavíkur-Leiknis, farið að leiðast þófið.
Hann skrúfaði sig stórkostlega framhjá tveimur varnarmönnum Fáskrúðsfirðinga og lagði boltann svo inn fyrir vörnina á Elvar Pál Sigurðsson sem skoraði með fyrstu snertingu, 1-0.
Fín afgreiðsla hjá Elvari sem er nú kominn með fjögur mörk í sumar en undirbúningurinn hjá Kristjáni er það sem menn munu tala um eftir þennan leik og eitthvað fram á haustið.
Þessi trufluðu tilþrif Kristjáns má sjá í spilaranum hér að ofan.
Trufluð tilþrif Kristjáns Páls skiluðu marki | Myndband
Tómas Þór Þórðarson skrifar
Mest lesið



Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool
Enski boltinn


„Gæðin í liðinu munu alltaf skora mörk“
Íslenski boltinn





Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga
Íslenski boltinn