Meðal þeirra sem mættu á tónleikana voru Angelina Jolie og Brad Pitt ásamt börnum sínum, The Weeknd, Vanessa Hudgens, Ashley Tisdale, Sia, Sofia Vergara, Halle Berry, Courtney Cox, Jason Derulo og margir fleiri.
Selena hefur hlotið mikið lof fyrir tónleikaferðalagið en það er greinilegt að það hafi spurst út á meðal stjarnanna í Hollywood þar sem það voru fáir sem létu sig vanta. Til þess að toppa kvöldið var hún einnig stórglæsileg í Galvan kjól, sem er breskt fatamerki og er rekið meðal annars af Sólveigu Káradóttur, en þetta er í annað sinn sem að Selena klæðist kjól frá merkinu.
