Íslenski boltinn

Mótsmiðasala hefst á miðvikudag

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Strákarnir okkar glöddu marga síðasta sumar.
Strákarnir okkar glöddu marga síðasta sumar. vísir/epa
Sala á svokölluðum mótsmiðum hefst á miðvikudag en þá er hægt að kaupa miða á alla heimaleiki karlaliðs Íslands í undankeppni HM.

Það er eðlilega mikill áhugi á karlalandsliðinu þessi misserin og því líklegt að margir vilji tryggja sér miða á alla leikina í einu.

Framboðið er aftur á móti takmarkað en aðeins verða seldir 1.000 mótsmiðar. Það er um 10 prósent af sætaframboði vallarins.

Hægt verður að kaupa mótsmiða í þrjú svæði og þar af leiðandi í þremur verðflokkum. Miðinn kostar þar frá 15 þúsund krónur upp í 35 þúsund.

Salan hefst klukkan 12.00 á miðvikudag og mun salan fara fram á midi.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×