Íslenski boltinn

Haukur Páll: Maður missir ekki af leikjum eins og þessum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Haukur Páll í leik gegn KR fyrr í sumar.
Haukur Páll í leik gegn KR fyrr í sumar. Mynd/Vísir
„Það er auðvitað frábært að vera komnir hingað aftur og við munum gera allt sem við getum til að endurheimta bikarinn,“ sagði Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Valsmanna, í samtali við Ingva Þór Sæmundsson á blaðamannafundi fyrir leik Vals og ÍBV í úrslitum Borgunarbikarsins.

Valsmenn hafa ekki náð upp sama stöðugleika í deildinni og í bikar í sumar en liðið fór erfiða leið í úrslitin í ár.

„Það er bara einn leikur og bikar í boði en við mætum ÍBV sem er með hörku lið. Þótt þeir hafi ekki verið að ná úrslitum upp á síðkastið vitum við að þetta er sterkt lið,“ sagði Haukur og bætti við:

„Við þurfum að leggja áherslu á okkar leik og reyna að spila hann. Ef við gerum það og leggjum okkur alla í verkefnið þá fögnum við vonandi í leikslok.“

Haukur Páll hefur verið tæpur vegna meiðsla undanfarnar vikur en hann segist vera að koma til.

„Staðan er bara ágæt. Maður er búinn að vera svolítið tæpur en maður missir ekki af leikjum eins og þessum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×