Ávöxtunarkrafa á breskum ríkisskuldabréfum lækkaði í gær og varð neikvæð eftir að Englandsbanki náði ekki markmiðum sínum í kaupum á nýjum skuldabréfum.
Bankinn var með áætlun um að kaupa ríkisskuldabréf sem hluta af peningalegri slökun (e. quantitative easing), stefnu til að örva hagvöxt. Bankinn fann ekki nógu marga seljendur til að ná markmiði sínu upp á 1,17 milljarða punda. Skuldabréf með gjalddaga 2019 og 2020 voru í kjölfarið með neikvæða kröfu, eða -0,1 prósent.
Jonty Bloom, viðskiptablaðamaður hjá BBC, segir að breska hagkerfið standi frammi fyrir áhættusamri lausafjárstöðu. Englandsbanki óttist mjög áhrif af ákvörðun Breta um að yfirgefa Evrópusambandið og sé þess vegna að lækka stýrivexti og reyna að auka fjármagn í hagkerfinu með kaupum á skuldabréfunum. Hins vegar sé það þannig að því meira sem Englandsbanki reyni að setja aukið fé inn í hagkerfið því meira vilji fjárfestar setja peningana sína í öruggar fjárfestingar sem komi ekki af stað hreyfingu í hagkerfinu.
Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.
Ávöxtunarkrafa neikvæð í Bretlandi
Sæunn Gísladóttir skrifar

Mest lesið

Sólon lokað vegna gjaldþrots
Viðskipti innlent

„Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart
Viðskipti innlent

Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura
Viðskipti innlent

Buffett hættir sem forstjóri við lok árs
Viðskipti erlent


Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni
Viðskipti erlent


Ráðin hagfræðingur SVÞ
Viðskipti innlent

Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl
Viðskipti innlent
