Íslenski boltinn

Grindavík komið upp í Pepsi-deildina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Grindvíkingar hafa spilað frábærlega í sumar.
Grindvíkingar hafa spilað frábærlega í sumar. vísir/hanna
Grindavík er komið upp í Pepsi-deild karla eftir fjögurra ára fjarveru.

Þetta var ljóst eftir 1-0 sigur liðsins á Fjarðabyggð í dag. Grindvíkingar eru sem stendur með 41 stig á toppi Inkasso-deildarinnar en KA-menn geta endurheimt toppsætið með sigri á Selfossi í leik sem var að hefjast.

Andri Rúnar Bjarnason skoraði eina mark leiksins í Grindavík í dag á 61. mínútu. Alexander Veigar Þórarinsson átti stoðsendinguna en átta mínútum síðar klúðraði hann vítaspyrnu.

Það kom þó ekki að sök og Grindvíkingar unnu leikinn og eru komnir upp í Pepsi-deildina þar sem þeir hafa ekki leikið frá árinu 2012.

Grindvíkingar enduðu í 5. sæti í fyrra en það var snemma ljóst að þeir ætluðu sér upp í ár. Þeir gulu hafa aðeins tapað tveimur af 19 leikjum sínum í sumar og skorað langflest mörk (46) allra liða í Inkasso-deildinni.

Fjarðabyggð er enn í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með 17 stig.

Liðið í botnsætinu, Leiknir F., hélt lífi í vonum sínum um að halda sér í deildinni með 3-2 sigri á Þór í dag. Fáskrúðsfirðingar eru nú aðeins þremur stigum frá öruggu sæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Leiknismenn leiddu 2-0 í hálfleik þökk sé mörkum Guðmundar Arnars Hjálmarssonar og Almars Daða Jónssonar.

Ármann Pétur Ævarsson minnkaði muninn í 2-1 á 68. mínútu en Ignacio Poveda Gaona jók muninn aftur í tvö mörk þegar þrjár mínútur lifðu leiks. Ingi Freyr Hilmarsson lagaði stöðuna í uppbótartíma en nær komust Þórsarar ekki. Þeir eru enn í 4. sæti deildarinnar með 29 stig.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×