Rihanna og Drake staðfesta ást sína Ritstjórn skrifar 1. september 2016 10:00 Glamour/Getty
Ástarsaga Rihönnu og Drake heldur áfram nú þegar þau hafa loksins staðfest stöðuna á sambandi sínu. Það hefur alltaf þótt óljóst hvort þau séu saman eða ekki en saga þeirra nær allt að 11 ár aftur í tíman en þau kynntust fyrst við gerð myndbandsins 'Pon De Replay' með Rihönnu árið 2005. Frá þeim tíma hafa þau ýmisst verið saman eða ekki og verið að hitta annað fólk í millitíðinni. Rihanna hefur meðal annars verið með Chris Brown, Travis Scott og fleirum á meðan Drake hefur verið með Serena Williams og Hailey Baldwin. Spennan á milli þeirra hefur þó verið rafmögnuð á þessu ári, eða frá því að þau gáfu út lagið Work saman í byrjun ársins. Seinustu mánuði hefur þau birst óvænt upp á sviðuð hjá hvort öðru á tónleikum og dansað saman. Það var svo ekki fyrr en um helgina þegar Rihanna tók við heiðursverðlaunum á VMA verðlaunahátíðinni sem að Drake tilkynnti ást sína á henni opinberlega. Hann sagði að hann hafi verið ástfanginn af henni frá því að hann var 22 ára og hann líti upp til hennar. Í gær voru þau enn og aftur saman uppi á sviði og þá gerðist það óhjákvæmilega, þau kysstust á munninn. Hægt er að túlka það þannig að þau séu loksins að staðfesta að þau séu saman. Þessar fréttir gera eflaust marga aðdáendur himinlifandi enda frábær ástasaga. Myndbandið af kossinum má sjá hér fyrir neðan.
Glamour Tíska Mest lesið Best klæddu stjörnurnar á MTV EMA hátíðinni Glamour Airwaves: götutíska og gleði í Hörpu Glamour Gamli góði rykfrakkinn Glamour Ísland í aðalhlutverki í jólalínu Ikea Glamour Raunveruleikaþættirnir „My Super Sweet 16“ endurlífgaðir Glamour Natalie Portman fékk þrefalt lægri laun en Ashton Kutcher Glamour Rauður augnskuggi og neongul hárkolla Glamour Tískuvikan í New York: Skreytingar Givenchy Glamour Óþekkjanleg Blake Lively Glamour Mest fjarlægðu flúrin Glamour