„Við getum ekki fallist á að brotið sé í stórum stíl gegn grundvallargildum Evrópusambandsins,“ segir Allesborn í viðtali við þýska dagblaðið Die Welt. „Þeir sem hafa eins og Ungverjar reist girðingar gegn flóttafólki eða brotið gegn fjölmiðlafrelsi og sjálfstæði dómstóla, þeim ætti að víkja tímabundið eða ef þörf krefur til frambúðar úr Evrópusambandinu.“

Þann 2. október verður efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um stefnu stjórnarinnar í málefnum flóttafólks. Þar verða kjósendur spurðir hvort þeir styðji ekki þær fyrirætlanir Viktors Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, að neita að hlíta ákvörðun Evrópusambandsins um að Ungverjar taki, eins og önnur ESB-ríki, við ákveðnum fjölda hælisleitenda í ár. Í hlut Ungverjalands koma aðeins 1.294 hælisleitendur, samkvæmt kvótakerfi ESB.
Stjórnin hefur vikum saman hvatt fólk til að kjósa og hafna kvótatilskipuninni þar sem óspart er höfðað til ótta fólks við útlendinga.
Þar hefur stjórnin varpað fram spurningum af þessu tagi: „Vissirðu að Evrópusambandið vill setja jafngildi heillar borgar af ólöglegum innflytjendum niður í Ungverjalandi?“ og „Vissirðu að frá því innflytjendakreppan hófst hefur áreitni gegn konum aukist verulega í Evrópu?“
Stjórn Orbans hyggst setja upp nýja girðingu meðfram landamærum Serbíu, til viðbótar þeirri sem nú þegar hefur verið sett upp. Þetta er gert til þess að Ungverjar verði nú örugglega viðbúnir fari svo að samningur ESB við Tyrkland verði að engu.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.