Íslenski boltinn

FH getur tekið risaskref í átt að titlinum | Hleypa Fylkismenn lífi í fallbaráttuna?

Ekki ólíklegt að við sjáum Atla Viðar fagna marki í Kaplakrika í dag.
Ekki ólíklegt að við sjáum Atla Viðar fagna marki í Kaplakrika í dag. Vísir/Stefán
FH-ingar geta með sigri á Blikum í kvöld á heimavelli stigið risaskref í átt að því að verja Íslandsmeistaratitilinn en allt annað en sigur fyrir Blika þýðir að titilvonirnar séu úr sögunni.

FH er í ansi góðri stöðu þegar stutt er eftir af Íslandsmótinu með sex stiga forskot á Fjölni í öðru sæti en jafntefli í kvöld myndi þýða að FH þyrfti að klúðra þremur af síðustu fjórum leikjum liðsins þar sem liðið mætir Fylki, Val, Víkingi R. og ÍBV.

Þá hefur FH verið ógnarsterkt á heimavelli undanfarin ár en aðeins einu liði hefur tekist á undanförnum tveimur tímabilum að taka þrjú stig í Kaplakrika.

KR-ingar hafa síðustu tvö ár tekið öll stigin frá Kaplakrika en það kom ekki að sök í fyrra þegar FH-ingar hömpuðu titlinum.

Blikar þurfa ekki einungis á sigrinum að halda til þess að halda lífi í titilvonum liðsins en ef FH vinnur á morgun gætu Blikar verið í fimmta sæti að átján umferðum loknum.

Liðið má varla við því að tapa stigum í baráttunni um sæti í Evrópu á næsta tímabili.

Í Laugardalnum taka Þróttarar á móti sjóðheitum Skagamönnum sem hafa unnið þrjá leiki í röð í Pepsi-deildinni. Eftir dapurt gengi framan af hafa Skagamenn unnið átta af síðustu tíu leikjum og eru skyndilega komnir í baráttu um Evrópusæti.

Þróttarar eiga enn fáein líf eftir í Pepsi-deildinni, átta stigum frá öruggu sæti þegar fimm leikir eru eftir en nýliðarnir þurfa að fá einhver stig áður en það er of seint.

Fylkismenn eiga gríðarlega mikilvægan leik gegn Víking Ó. í dag en í kvöld mætir Stjarnan Valsmönnum.Vísir/Hanna
Þá geta Fylkismenn hleypt lífi í botnbaráttuna á ný þegar liðið tekur á móti Víking Ólafsvík á Flórídana-vellinum á morgun.

Takist gestunum frá Ólafsvík að taka þrjú stig heim eru þeir langt komnir með að tryggja sæti sitt í deild þeirra bestu á næsta tímabili.

Árbæingar eru fjórum stigum frá öruggu sæti en takist þeim að sigra á morgun er aðeins tvö stig sem skilja að liðið í ellefta sæti og níunda sæti og gæti því verið æsispennadi lokabarátta framundan á botni deildarinnar.

Í lokaleik dagsins tekur Stjarnan á móti fljúgandi Valsmönnum sem hafa unnið síðustu fjóra leiki í röð án þess að fá á sig mark.

Það hefur engin bikarþynnka sýnt sig hjá Valsmönnum sem hafa skorað þrettán mörk í þremur leikjum í Pepsi-deildinni eftir bikarúrslitaleikinn.

Að sama skapi má segja að um sé að ræða síðasta séns Garðbæinga á að blanda sér í baráttuna um Evrópusæti á næsta ári.

Garðbæingar hafa misst flugið að undanförnu og hafa tapað þremur leikjum í röð en geta enn bjargað tímabilinu með góðu skriði á lokametrunum.

Fylgst verður með öllum leikjunum á Boltavakt Vísis en leikir FH og Breiðabliks annarsvegar og Stjörnunnar og Vals hinsvegar verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×