Íslenski boltinn

Seyðfirðingar nældu í mikilvægt stig í Breiðholti

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Seyðfirðingar nældu í stig sem gæti reynst þeim mikilvægt þegar uppi er staðið í haust.
Seyðfirðingar nældu í stig sem gæti reynst þeim mikilvægt þegar uppi er staðið í haust. vísir/hanna
Huginn náði stigi í 1-1 jafntefli gegn Leikni Reykjavík í 20. umferð Inkasso-deildarinnar en með stiginu nær Huginn fjögurra stiga forskoti á Fjarðarbyggð í botnbaráttunni.

Huginn berst fyrir lífi sínu í næst efstu deild þegar lítið er eftir en með jafntelfinu í dag er liðið með smá öndunarrými þegar lítið er eftir.

Atli Arnarson kom Leikni yfir á 17. mínútu en aðeins sjö mínútum síðar jafnaði Marko Nikolic metin fyrir gestina.

Daði Bærings Halldórsson fékk rautt spjald í uppbótartíma en gestirnir náðu ekki að nýta sér liðsmuninn á lokasekúndunum.

Fjarðarbyggð og HK eiga leik til góða á Hugann í botnbaráttunni en Fjarðarbyggð leikur gegn toppliði KA í dag á meðan HK mætir Haukum á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×