Gengi pundsins lækkaði um sex prósent á asískum mörkuðum í nótt og er það mesta lækkun á gjaldmiðlinum síðan að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið þann 23. júní síðastliðinn.
Gengi pundsins gagnvart íslensku krónunni er nú 141 og hefur það ekki verið lægra síðan fyrir hrun. Síðast var það 141,4 þann 14. mars 2008. Eins og Vísir hefur greint frá hefur gengi pundsins lækkað verulega frá því að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið. En frá síðasta sumri hefur gengi pundsins gagnvart íslensku krónunni lækkað um 32 prósent.
Lækkun gengi pundsins hefur neikvæð áhrif á útflutning íslenskra sjávarafurða til Bretlands og gæti dregið úr neyslu breskra ferðamanna hér á landi. Aftur á móti er nú ódýrara fyrir Íslendinga að versla breskar vörur.
Englandsbanki rannsakar dularfullt gengishrun
Sem fyrr segir lækkaði gengi pundsins verulega í nótt og rannsakar Englandsbanki nú málið, en talið er að innsláttarvilla kunni að hafa valdið hruninu. Lækkunin kom í kjölfar þess að Financial Times birti frétt á netinu um að Francois Hollande, forseti Frakklands, gerði kröfu um harðar Brexit samningaviðræður. Fréttin gæti hafa ýtt undir sölu, eða innsláttarvilla hefði getað valdið þessu, að því er segir í frétt BBC um málið.
