Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að sækja 225 milljarða norskra króna, um 3.200 milljarða íslenskra króna, úr olíusjóð norska ríkisins til að standa straum af fjárlögum næsta árs.
Siv Jensen, fjármálaráðherra Noregs, kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar í morgun.
Upphæðin sem um ræðir samsvarar um þremur prósentum af sjóðnum, sem er sá stærsti sinnar tegundar í heimi.
Skattur á fyrirtæki verður lækkaður í 24 prósent og svo í 23 prósent á næsta ári, en nánar er fjallað um fjárlagafrumvarpið á vef norska ríkisútvarpsins.
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, sagði í gær að eftir tuttugu ára góðæristímabil í Noregi stefni nú í að minnsta kosti tíu mögur ár. Sagði hún marga einstaklinga mega gera ráð fyrir minni tekjum.
Solberg sagði að leggja ætti áherslu á tæknivæðingu í velferðarmálum þannig að færri starfsmenn verði á hvern sjúkling og aukin áhersla lögð á þekkingu og menntun.
Norðmenn sækja 3.200 milljarða úr olíusjóðnum

Tengdar fréttir

Tíu mögur ár framundan
Eftir 20 ára góðæristímabil í Noregi stefnir nú í að minnsta kosti tíu mögur ár, að því er Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, greinir frá