Þetta segir Þorsteinn Víglundsson, oddviti Viðreisnar í Reykjavík norður. Tilefni ummæla Þorsteins er pistill fjölmiðlarýnisins Egils Helgasonar um að líklegasta ríkisstjórnin verði mynduð af Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum og Viðreisn.
Niðurstöður Þjóðarpúls Gallups, sem birtur var síðast í dag, sýnir flokkana þrjá með samanlagt 45 prósnet fylgi ef gengið væri til kosninga í dag.
Þorsteinn segir pælingar sem þessar vera vinsælar, þ.e. að halda á lofti tengslum Viðreisnar við Sjálfstæðisflokkinn en í röðum Viðreisnar má finna fyrrverandi framafólk úr Sjálfstæðisflokknum. Má nefna Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Þorstein Pálsson sem dæmi.
Hins vegar er verulegur munur á áherslum flokkanna að sögn Þorsteins og nefnir hann sérstaklega sjávarútveg, landbúnað, Evrópumál og stjórnarskrá.
„Í þessum málaflokkum er Viðreisn mun nær Bjartri framtíð og Pírötum,“ segir Þorsteinn.
Við erum ekki líflína ríkisstjórnarinnar. Við viljum breytingar #xc
— þorgerður katrín (@thorgkatrin) October 3, 2016