Ljóst er að ræningjarnir komust í burtu með skargripi sem metnir eru á hundruð milljóna og er þeirra leitað. Margt er á huldu varðandi ránið en hér er farið yfir það sem er vitað.
Hvar átti ránið sér stað?
Ránið fór fram í morgun í veglegri íbúð sem Kardashian og föruneyti hennar hafði leigt fyrir dvölina vegna tískuvikunnar í París. Íbúðin er í áttunda hverfi Parísar. Í húsinu eru níu íbúðir sem hægt er að leigja. Eru þær afar vel búnar og vinsælar í heimi fræga fólksins enda auðvelt að forðast ágenga ljósmyndara sé hafist við í íbúðinni.
Kanye West, eiginmaður Kim Kardashian hefur meðal annars gist í húsinu sem um ræðir en staðsetningu þess í París má sjá hér að neðan.
Franska innanríkisráðuneytið segir að ræningjarnir, fimm talsins, hafi dulbúið sig sem lögreglumenn. Þannig hafi þeir komist inn anddyri byggingarinnar þar sem þeir hótuðu húsverðinum og neyddu hann til að opna íbúð Kardashian.

Hvað tóku þeir?
Ljóst er að mennirnir stálu miklum verðmætum í íbúðinni þó óljóst sé nákvæmlega hverju var stolið. Þó sé ljóst að skartgripabox með verðmætum skartgripum var tekið ásamt hring. Saksóknarar í París segja að virði þýfisins sé allt að tíu milljónir evra, um 1,2 milljarður íslenskra króna.
Sjá einnig: Kim bundin, kefluð og hent í baðkar: Bað ræningjana að þyrma lífi sínu
Ekki er vitað hvort að skartgripirnir voru í eigu Kim eða hvort þeir voru í láni en Kim hefur undanfarna daga tekið þátt í tískuvikunni í París og vakið mikla athygli hvert sem hún hefur farið. Sjálf á hún mjög verðmæta skartgrpi, þar með talið trúlofunarhringinn sem Kanye West gaf henni auk annars hring sem Kim hefur verið duglega að sýna á samfélagsmiðlum. Óljóst er hvort að annar þessara hringa sé sá sem tekinn var í morgun.
Svo virðist sem að ræningjarnir hafi komist á burtu á hjólum og er þeirra leitað af lögreglu.
Athygli vakti í síðustu viku þegar öryggisverðir Kim voru fljótir að snúa niður Úkraínumanninn Vitalii Seduik þegar hann laumaði sér að Kim Kardashian og kyssti afturenda hennar. Svo virðist þó sem að öryggisverðir hennar hafi verið víðsfjarri í morgun.
Yfirvöld í París hafa þó ekki gefið upplýsingar um staðsetningu öryggisvarða hennar en fréttamaður CNN í París segir ljóst að ránið hafi verið þaulskipulagt og framkvæmt af reynslumiklum mönnum sem hafi haft upplýsingar um vettvanginn.
En hvernig líður Kim?
Þessu er erfitt að svara en Kim yfirgaf Frakkland fyrr í dag. Talsmaður hennar sagði hún sé í miklu áfalli en ómeidd. Eftir ránið kom móðir hennar, Kris Jenner ásamt systrum Kim, Kendall Jenner og Kourtney Kardashian sem hugguðu Kim.
Lögregla rannsakar málið.