Íslenski boltinn

Leikmaður Þróttar sakaður um að áreita stúlku undir lögaldri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Thiago Borges í leik með Þrótti í sumar gegn ÍBV.
Thiago Borges í leik með Þrótti í sumar gegn ÍBV. vísir/anton brink
Thiago Pinto Borges, leikmaður Þróttar í Pepsi-deild karla, er sakaður um að hafa áreitt unga stúlku undir lögaldri. Þetta kemur fram á 433.is en Vísir hefur sömuleiðis fengið þessar ásakanir á hendur leikmanninum staðfestar.

Brasilíumaðurinn, sem er 27 ára gamall, á að hafa sent ungu stúlkunni myndir og skilaboð sem voru ekki við hæfi. Vegna þessa hefur samningi hans við Þrótt verið rift.

„Hann braut ákvæði samnings og sökum þess var samningi rift. Ég fer ekki nánar út í það hver ástæðan er,“ segir Ótthar Edvardsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þróttar, við 433.is.

Samkvæmt 433.is var Thiago meinað að mæta á æfingu Þróttar fyrir lokaleik liðsins gegn Víkingi í gær þar sem hann var ekki í leikmannahópnum. Þá fékk hann ekki heldur að mæta á lokahóf knattspyrnudeildar Þróttar sem fram fór í gærkvöldi.

Thiago Pinto spilaði lengi í Danmörku áður en hann kom hingað til lands. Hann spilaði 20 leiki fyrir Þrótt án þess að gera mikið. Brassinn skoraði tvö mörk, bæði í 4-1 tapleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×