Keyrði þjálfara mótherjanna niður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2016 16:45 Mike Budenholzer eftir byltuna. Vísir/Getty
Mike Budenholzer, þjálfari NBA-liðsins Atlanta Hawks, þurfti að yfirgefa leik liðsins í nótt eftir að hafa lent í slæmu samstuði. Atlanta Hawks var að spila við New Orleans Pelicans á undirbúningstímabilinu en missti þjálfara sinn í lok fyrri hálfleiks. Langston Galloway, bakvörður New Orleans Pelicans, var að reyna að bjarga því að boltinn færi útaf vellinum þegar hann hljóp Mike Budenholzer niður. Budenholzer kastaðist yfir fyrstu röðina og inn í blaðamannaaðstöðuna á leiknum og þetta var því talsvert högg sem hann fékk frá Langston Galloway. Mike Budenholzer var einnig viðkvæmur fyrir því hann var með höndina í fatla eftir að hafa nýverið gengist undir aðgerð á fingri. Menn þurftu að hjálpa Mike Budenholzer á fætur eftir áreksturinn. Hann sat síðan sárþjáður á bekknum í nokkrar mínútur og það leyndi sér ekki að karlinn fann mikið til. Það fór svo á endanum að hann yfirgaf salinn og fór inn í klefa. Budenholzer kom ekki aftur inn í salinn og aðstoðarmaður hans Darvin Ham tók við sem þjálfari liðsins. Ham stýrði Hawks-liðinu til sigurs í leiknum. Budenholzer talaði heldur ekki við fjölmiðla eftir leikinn en samkvæmt fréttum úr herbúðum Atlanta Hawks þá líður karlinum ágætlega. Hann fékk högg á rifbeinin en meiddist ekki alvarlega.Mike BudenholzerVísir/Getty
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira