Innlent

Bein útsending: Sérfræðingar spá í spilin fyrir komandi kosningar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þau Anna Hrefna Ingimundardóttir hagfræðingur og Guðmundur Hálfdánarson prófessor í sagnfræði mæta í sjöunda þáttinn af Kosningaspjalli Vísis sem hefst klukkan 13:30 í dag.

Þau ætla að spá í spilin nú þegar ellefu dagar eru til kosningar og rýna meðal annars í kosningabaráttuna og útspil Pírata í henni.

Þátturinn verður í beinni útsendingu hér á vefnum sem og á Facebook-síðu Vísis, þar sem áhorfendur geta tekið þátt í umræðunum, en fylgjast má með útsendingunni í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×